Gáleysi & glannaskapur ...

IMG 2712Það var heldur aumt að lesa í netmiðlum um vagnstjórann á leið 51 sem eitthvað hefir þrotið dómgreindina í Þrengslunum. Að öllu jöfnu ekur leið 51 ekki þar en Hellisheiðin var lokuð þennan dag.

Góðu heilli var sá sem stýrði færður til í starfi hjá Hópbílum, sem annast akstur á þessari leið, enda erfitt að réttlæta svona háttalag.

Glanni glæpur undir stýri


Komst í hann krappan
hvað kom fyrir tappann?
Að glanna er glæpur
gaurinn virkar tæpur
það þarf að tukta til kappann.


Bloggfærslur 14. ágúst 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband