Hinn teinrétti en tornæmi dr. Gylforce tók eptir því í fjölmiðlum vorum að enn á ríkisvaldið eptir að ræða við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SSH, um Borgarlínuna margumræddu.
Ekki er gott að sjá í yfirliti með fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár hvort framlag þar sé til Borgarlínunnar. Hinsvegar segir í núverandi stjórnarsáttmála að stutt verði við verkefnið, hvað sem það nú þýðir í reynd.
Það verður því afar spennandi & fróðlegt að sjá hvað kemur út úr viðræðum milli ríkisvaldsins & SSH á næstu vikum. Vonandi verður einhver niðurstaða því breyting eða úrbætur á ferðavenjum á höfuðborgarsvæðinu þolir litla bið.
Úrbóta er þörf. Maður lifandi!
Um Borgarlínu er babblað enn
byrjum á okkar strætum.
Ferðavenjum breytum senn
& fjölbreytnina bætum.
Samgönguráðherra um Borgarlínu
Bloggar | 13.9.2018 | 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 13. september 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar