Glæstir & glænýir ...

20171101130042-d0caee21Splunkunýir, spánnýir
splæst á okkur verja.
Huggulegir & hlýir 
með hægð mun´oss ferja.

Gleðifregnir berast nú oss vagnverjum þess efnis að einn af verktökunum í hinu lostfagra leiðakerfi, Hagvagnar, hafa nú fest fjár í fjórum nýjum eðal Iveco Crossway vögnum. Hipp-hipp-húrrey!

Dr. Gylforce hefir reyndar ekki séð þessa unaðsvagna en hefir þetta eptir áreiðanlegum heimildum. Vagnarnir fá númerin 220-223 & verða vonandi á ferðinni á leiðum 11 & 13 en Hagvagnar annast einmitt akstur á þeim leiðum.

Ef þeir eru ekki komnir í umferð er þetta er ritað vonar doksi kallinn að það verði eins fljótt & auðið er. Maður lifandi!





Mynd: piwigo.citybus.com


Bloggfærslur 14. janúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband