Rafvagnar á randi
rís þá upp mitt geð.
Kynslóðir komandi
koma svo - allir með!
Hinn reikuli & ráfandi dr. Gylforce rambaði vitaskuld á rafvagna á rápi & randi sínu á degi lukkunnar. En ekki hvað???
Hinsvegar hefir doksi kallinn verið huxi mjög yfir minnisblaði byggðasamlagsins sem skýtur upp ýmsum "hagræðingarhugmyndum" í hinu lostfagra leiðakerfi höfuðborgarsvæðisins sem minnst var á í færslu hér að neðan. Nema hvað.
Höfundar minnisblaðsins minnast ekki á að fækka leiðum sem aka upp & niður hina þröngu Hverfisgötu. Það væri þjóðráð að láta einvörðungu eina af leiðum 1, 3 & 6 aka til & frá Hlemmi. Hinar ættu að fá stoppistöð á Fríkirkjuvegi við Vonarstræti & beygja svo að Ráðhúsinu. Reyndar þyrfti þá að finna nýtt athvarf fyrir vagnstjórana í stað Hlemmtorgs & með það að leiðarljósi væri heillavænlegast að láta leið 3 fara á Hlemminn. Hinar ekki.
Hinsvegar ætlar Strætó að láta þristinn aka um Sæbrautina & Kalkofnsveg frá & með deginum í dag. Hvað um það.
Dr.-inn átti aptur á móti unaðsstundir í rafvögnunum þennan annars ágæta laugardag. Hinir hljóðlátu eru mjög mikið brúkaðir á leiðum 2, 3 & 4 sem hentar doksa afar vel.
Bílar og akstur | 6.1.2019 | 10:41 (breytt kl. 13:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 6. janúar 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar