Borgarlínufundum að ljúka ...

74237647_1224974477691873_914946214368116736_nLínufundum lýkur senn
lofar þá hver kjaptur.
Gleðskap þessum Gylforce enn
gleymir aptur og aptur.

Nú fer hver að verða síðastur að koma á kynningarfundi á vegum Verkefnastofu Borgarlínunnar & Strætós & kynna sér línuna & hið nýja leiðanet byggðasamlagsins. Nema hvað.

74359690_1224239377765383_3740079228121513984_nIllu heilli hefir dr. Gylforce ekki náð fundum þessum hvar eitt & annað kemur ætíð upp sem verður til þess að dr.-inn geðþekki er vant við látinn.

Það eina sem dr. Gylforce skilur lítið í þessu er orðanotkun í sambandi við þetta allt saman.

Leiðanet? Er þetta ekki bara nýtt leiðakerfi hjá Strætó? 

Má ekki bara kalla það því nafni??? 

Humm, humm???



Bloggfærslur 30. október 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband