Oddeyringa óreiða
afar dapurt kerfi.
Í glæsta munu greiða
gjald í sín hverfi.
Gjald í vagna nyrðra???
Forkólfar leiðakerfisins nyrðra standa frammi fyrir áleitnum spurningunum þessi misserin. Ljóst er að leiðakerfið í höfuðstað Norðurlands þarf að bæta enda hefir dr. Gylforce verið tíðrætt um t.d. hví öngvin vagn gangi hvorki að flugvellinum né Hömrum. Hvað um það.
Aukinheldur er leiðakerfið afar bágborið á kvöldin & um helgar. Má með nokkru sanni segja að nyrðra sannist hið fornkveðna að ef frítt er í strætó verður leiðakerfið aldrei gott. Margir kalla eptir því að gjaldfrjálst verði í vagnana á höfuðborgarsvæðinu en doksi kallinn er ekki hrifinn af því. Nema hvað.
Betra er að treysta á hóflega gjaldtöku vagnverja sem aptur geta þá gert kröfu um að fá almennilegt almenningssamgöngukerfi í staðinn.
Amen.
Bloggar | 12.3.2019 | 17:11 (breytt kl. 19:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Prótestarar á pappakössum
með piparúð´ á kinn.
Á veginum var fullt af rössum
komst vagninn hringinn sinn?
Mótmæli eru eðlilegur hluti í lýðræðissamfélagi & ber að virða rétt fólks til þeirra.
En plís, nenniði að hætta að mótmæla við Hlemm & leyfa vögnunum að halda áætlun???
Mynd: Visir/Vilhelm
Bloggar | 12.3.2019 | 00:17 (breytt kl. 00:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 12. mars 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar