Hinn eitilharði & upprennandi dr. Gylforce einhenti sér eitt sinn í eyðu einni í hverfaleið hér í Voginum, hvar hann náði hinni kynngimögnuðu leið 35.
Dr.-inn beið vitaskuld eptir vagni sínum, hvar hann sá goðsögnina sjálfa í skýlinu. Takk fyrir túkall! Hr. Stefán Grímsson sat hinn spakasti & reykti stubba af áfergju. En ekki hvað???
Dr. Gylforce buktaði sig & beygði, bauð honum vitaskuld góðan dag & minntist bragsins fagra um þennan ljúfling:
Eptir vagni eitt sinn leit
einatt gestur tíður.
Í makindum Mr. geit
málaður, skeggsíður.
Dæmafár í doktors sveit
dedúar & bíður.
"Góðan dag" svaraði geit
við Gylforce-inn blíður.
Amen. Þvílík unaðsferð!
Bloggar | 10.4.2019 | 12:57 (breytt kl. 13:00) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 10. apríl 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar