Gamli jálkur göslast enn
gæði hrein frá Svíum.
Vonandi þó vagninn senn
víki fyrir nýjum.
Dr. Gylforce hélt ótrauður á vit vagna í gær, hvar hann var óðara kominn að okkar Frónbúar Mekka, Hlemmtorgi. Nema hvað.
Dr.-inn gaut augum sínum að sænskættuðu stáli á leið 2 en vagnar frá fyrirmyndarríkinu virðast óðum týna tölunni hér á höfuðborgarsvæðinu. Illu heilli.
Á þessu ári hyggst byggðasamlagið Strætó festa kaup á metanvögnum. Vonandi verða þeir sænskættaðir en Norðlendingar hafa einmitt tekið þrjá slíka í notkun sem dr.-num líst afar vel. á. Svo vel raunar að í næstu viku vill hann óður taka hús á þeim. Hvað um það.
Dr. Gylforce gat eigi setið á sér & settist inn í þennan 17 ára gamla vagn á leið 2 & tók sér 50 mínútna rúnt frá Hlemmi að Mjódd okkar Breiðhyltinga í gegnum Grensás, Hamraborg, Smáralind & efri byggðir Kópavogs & leið þetta líkt & um 5 mínútur væri að ræða.
Unaður.
Samgöngur | 11.4.2019 | 09:14 (breytt kl. 19:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 11. apríl 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 118882
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar