Leið af leið ...

2B635C5FEC9BDCF79A302F5AB36DD26B396C98071421979CA455EA881615B6B4_713x0Fékk flogakast á ferð

Vagnstjórinn fékk flog
flykktist út á tún.
Meðvitundarlaus - og
mörgum brá í brún.

Dr. Gylforce verður að beita hinum leiðigjarna frasa - betur fór en á horfðist - þegar vagnstjórinn á leið 7 missti meðvitund fyrr í dag & endaði för sína út á túni í Mosfellsbænum.

013D61A4B8B1546239D9E842C8A00E95F5606AD9B5BA33FB35F20DD92F578755_713x0Sem betur fer voru meiðsli minniháttar en talið er að vagnstjórinn hafi fengið flog með þessum afleiðingum. Vagnstjórinn & einn vagnverji fengu aðhlynningu á Landspítalunum en þrír verjar voru um borð þegar þetta gerðist.

C661DEB7E5A012B93921868CE0EB52D0307CA79DEEFB5FA7659CFCDA56B357BB_713x0 (1)Þá þykir mildi að vagninn hélst á hjólunum allan tímann & var hægt að aka honum af slysstað. Vonandi ná þeir báðir sér hið fyrsta en atvik sem þetta eru afar fátíð hjá Strætó, góðu heilli.




Myndir: Vísir.


Bloggfærslur 17. maí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband