Aptur að sænum ...

Um Sæbraut ekur aptur
eðalleiðir breyttar.
Inn kemur varla kjaptur
er keyrir hann þar.

44047480_175364156722848_6209537010726600704_nEðalleiðirnar sex, 1, 6, 11, 12, 13 & 14 koma til með að aka um Sæbraut í sumar til & frá Hlemmi, hvar framkvæmdir standa yfir á Hverfisgötunni. Aptur & enn. Nema hvað.

Dr. Gylforce finnst nú ekki gaman að láta vagnana aka þar um. Reyndar er leið 3 nýbyrjuð á ferð um Sæbrautina sem er fínt svo að einhver leið fari framhjá t.d. Hörpunni hinni fögru. En ekki hvað??? 

Hvað um það. Vér vagnverjar verðum að þreyja þorrann í sumar en vagnarnir verða vonandi komnir á rétt ról í ágústlok.

 

https://www.frettabladid.is/frettir/ekur-saebraut-i-stad-hverfisgotu-vegna-framkvaemda-i-sumar/

Yfir&út!


Bloggfærslur 19. maí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband