Málþóf & munaður ...

40428424_997353330447376_5205293207889379328_nHinn munúðarfulli & makindalegi dr. Gylforce mjakaði sér mikið í vagnana í blíðviðri helgarinnar. Nema hvað.

Það fór vel á því að einhenda sér á leið eptir að hafa fylgst gaumgæfilega með þingmönnum Miðflokksins í hrókasamræðum við sjálfa sig nátt eptir nátt á hinu háa Alþingi. En ekki hvað??? 

downloadMiðflokkurinn í málþófi nú
með miklu fjáraustri.
Í sinni vinnu varla edrú
vaktina end´á Klaustri.

Dr. Gylforce tók vel hús á fjórum leiðum hvar hann heimsótti dekk & drif þeirra í sífellu. Var hér um að ræða leið leiðanna, leið 1, leið 4 & hringleiðirnar huggulegu í Voginum fagra, leiðir 35 & 36.

Doktorinn fékk dýrindisferðir með öllum þessum leiðum & vögnum hvar hann náði átta unaðsrúntum á vel lukkuðum laugardegi. 

Meira svona.

Amen.


Bloggfærslur 28. maí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband