Fljótur & frískur var
frækinn & knár.
Snöfurlegur & snar
snöggur & klár.
Sprækur & ekki spar
spaugilega súr.
Skeleggur Gylforce skar-
aði skjótt fram úr.
Eptir að hafa lokið embættisskyldum sínum hélt dr. Gylforce þegar í stað á vit vagna, hvar hann hitti fyrir leið leiðanna, leið 1, leið 4 & 21. En ekki hvað???
Það hefir reynst happadrjúgt að mati dr. Gylforce að breyta leið 21 & láta hana stöðva við Smáralindina í stað þess að bruna beint í Garðabæinn.
Vonandi heldur Strætó bs. áfram að þróa hina 21. leið með því að láta hana ekki eiga endastöð í Firði heldur út á Völlunum aukinheldur sem innanbæjarleiðir Gaflara verði teknar til gagngerrar endurskoðunar. Nema hvað.
Til þess að bæta leiðakerfið í Firðinum verða starfsmenn byggðasamlagsins að vera leiðandi & "selja" kjörnum fulltrúum þar hugmyndina þótt hún hugsanlega kalli á meira fé.
Eins & staðan er núna er leiðakerfið í Firðinum ruglingslegt; of margar leiðir, sumar aka bara á morgnana meðan aðrar eru á leið eptir hádegið.
Hvað um það. Vonandi ber byggðasamlaginu gæfa til þess að breyta þessu þegar vetraráætlun hepst um miðjan ágúst.
Yfir&út!
Bloggar | 24.6.2019 | 19:57 (breytt kl. 20:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 24. júní 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 118892
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar