Milljón ellegar munaðurinn ...???

joi strætoMilljón ellegar munaðurinn???

Ein milljón á ári
í umferðarfári.
Eða undir hundrað
sem er vert undra
& magnaðar ferðir fjári.

Byggaðsamlagið Strætó heldur ótrautt áfram að hvetja alla til þess að nýta sér vistvæna samgöngumáta á borð við vagnana, vini vora. Nema hvað.

47135007 1886459348090319 2297497982246846464 oNú hefir samlagið í samstarfi við tvö önnur firma á boðstólum 50% endurgreiðslu á tveimur fargjöldum í gegnum Strætó appið. Gildir þetta kostaboð í júní.

Þá kemur aukinheldur fram í fréttinni hér að ofan að árlegur rekstrarkostnaður bifreiðar er um ein milljón króna. Árskort í strætó er undir 70.000 kr. Yfirleitt duga nú vagnarnir ekki einvörðungu en ef verjar vorir eru snjallir & skynsamir geta þeir notfært sér deilibíla (zip car), fengið far, brúkað hjólfákinn & vitaskuld hina margrómuðu - tvo jafnfljóta.

20171101130042-d0caee21Með því móti er hægt að spara sér umtalsverðar fjárhæðir sem flestir myndu taka fagnandi. Maður lifandi - en ekki hvað???




Efsta mynd: eyjan.is


Bloggfærslur 4. júní 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband