Eins & títt er á þessum tímapunkti í skólaárinu var komið að því að uppfræða ungviðið í mennta- & menningarsetrinu útivið í einmuna veðurblíðu. En ekki hvað???
Dr. Gylforce stakk að sjálfsögðu upp á eðal vagnaferð með ungmennin hvar hann langaði með þau í fjöruferð; þang & þari, hrúðukarlar & hagaköngulær. Nema hvað.
Það vakti gjörhygli Gylforce-ins hve illa öllum leiðum tókst að halda áætlun. Doksi kallinn var með unglingana utan annatíma, um sumar en samt sem áður voru allar leiðir með seinkomur upp á 4-6 mínútur. Nokk furðulegt.
Dr. Gylforce hélt með ungviðið frá Kársnesi að Ægisíðu með leið leiðanna - leið 1, leið 15, leið 11 & leið 4. Hvað um það.
Já, þetta voru svo sannarlega vonbrigði vagnverjans, allar þessar seinkomur. Maður lifandi!
Inn í ellefuna arka
með eðalnemendur.
Fer svo næst í fjarka
fjarska sólbrenndur.
Í vagni að Ægisíðu
með yndislegan feng.
Með börnin í veðurblíðu
í barndóm aptur geng.
Samgöngur | 5.6.2019 | 15:53 (breytt kl. 17:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 5. júní 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar