Opt er sagt að hún ku vera skrýtin tík þessi pólitík. Þótt það sé frasi er það hverju orði sannara. Sem dæmi um það lagði borgarfulltrúi Flokks fólksins fram í borgarráði á dögunum fyrirspurn í níu liðum varðandi Borgarlínuna.
Það er vitaskuld gott & blessað að velta vel fyrir sér jafn viðamiklu verkefni og Borgarlínan er. Hinsvegar hepði borgarfulltrúinn hæglega getað fengið svör við mörgum spurningum sínum einfaldlega með þvi að fara á síðuna borgarlinan.is:
Borgarfulltrúa blaður
bölvanlegt er þvaður.
Málflutningur bjagaður
brátt sér það hver maður.
Þrjár spurningar fulltrúans meika einhvern sens & þarfnast betri svara:
Þvaður
6. Hver á að reka hana (Borgarlínuna)? Strætó? Ríkið? Sveitarfélög? Allir saman? Aðrir?
7. Hvar er hægt að sjá rekstrar- og tekjuáætlun borgarinnar fyrir borgarlínu?
9. Hvað þýðir þetta í skattaálögum á almenning?
Hinar spurningar eru annaðhvort ekki tímabærar eins og fjöldi vagna í Borgarlínunni, það fer væntanlega eptir tíðninni, eða svörin eru að finna á borgarlinan.is.
Vonandi hefir umhverfis- & skipulagssvið bein í nefinu og bendir borgarfulltrúanum einfaldlega á heimasíðu Borgarlínunnar og vonast eptir því héreptir að pólítískt kjörnir fulltrúar séu færir um að afla sér sjálfir upplýsinga á hinu svokallaða alneti.
Eða er það kannske ekki málið?
Kann að vera að hér sé verið að drepa málinu á dreif??? Af borgarfulltrúa Flokks fólksins??? Getur það verið??? Humm, humm ...
Samgöngur | 11.7.2019 | 16:39 (breytt kl. 16:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Núna út um borg & bý
bikað - mikið streð.
Tafir vagna æ & sí
ergja doktors geð.
Hinn fráleitt mélkisulegi & ávallt munúðlegi dr. Gylforce hélt í mikinn & margslunginn rúnt meðal vina sinna, vagnanna, hvar hann lagði í glaum & gleðskap í borg óttans. Maður lifandi!
Dr. Gylforce vafraði vallprúður & veglegur inn í rafvagn einn eptir unaðsstund í miðbæ Reykjavíkur í yndislegum félagsskap. Sá umhverfisvæni var á leið 3 & á heimleið með hinn bísperrta Breiðhylting.
Illu heilli tafðist rafvagnsunaðurinn vegna mikilla malbikunarframkvæmda út um borg & bý. Vagnstjórinn varð t.d. að aka um Barónsstíg & beygja inn Eiríksgötu sem er alltof þröng fyrir fallegan 12 metra vagn. Dr.-inn var mjög taugaóstyrkur meðan á þessu stóð & hapði stöðugar áhyggjur af 75 milljón króna rafvagninum. Hvað um það.
Aukinheldur hefir verið mikið um lokanir í Skógarselinu, hvar dr. Gylforce á nú til að hoppa inn & út í unaðslega vagna.
Sumsé, tafir & tálmanir um gervalla borg eins & vera ber um hásumar & um að gera að fylgjast vel með tilkynningum frá byggðasamlaginu - en ekki hvað???
Samgöngur | 11.7.2019 | 11:26 (breytt kl. 11:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 11. júlí 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar