Víndrukkinn vagnverji ...

maxresdefaultFullur af víni var hann
vitlaust þetta geim.
Laganna verðir - löggan 
lullaði með hann heim.

Víndrukkinn vagnverji 

Dr. Gylforce, sem hvorki er haldinn þröngsýni né þurrafúa, þaut á vit vagna um leið & færi gafst í mildu og fallegu veðri hér í höfuðborginni. En ekki hvað???

66894870_10156599371358348_4081270257589682176_nDr.-inn sá ekki betur en að flestir vagnverjarnir væru allsgáðir - góðu heilli - en doksi kallinn nældi sér í ljúfar langdvalir með leiðum 12 & 18 að þessu sinni. Nema hvað.

111111111Dr. Gylforce komst enn & aptur i kynni við rafvagna á leið 18. Hann nýtti sér heiðgulu körfuna & setti þar allar vörur sínar (sem voru nú ekki ýkja margar!). Hvað um það.

Dr.-inn þrýsti sér í þrásetu góða á leið 12 frá Ártúni að Hlemmtorgi.

Það gladdi hans gamla hró að sjá hve vel vagninn var nýttur en hin tólfta leið er orðin sú næst fjölmennasta í hinu lostfagra leiðakerfi okkar.

Amen.


Rafvagnar á randi ...

Rafvagnar á randi
rétt náðum í þá.
Veit að þeirra vandi
viðbótin´að fá.

Hinn ungi & aldni vagnverji héldu í unaðsrúnt frá selinu góða að Mjódd okkar Breiðhyltinga í gær. Nema hvað.

Vitaskuld fengu feðgarnir rafvagn, hvar hann skilaði þeim á hárréttum tíma á kórréttan stað. En ekki hvað???

29541757_10215823381687226_3034571720448867219_nFleiri rafvagnar litu dagsins ljós í Mjóddinni. Enn bólar þó ekkert á hleðslustöðvum fyrir þá og meðan svo er geta þessir umhverfisvænu vinir okkar úr Austri ekki verið í fullri notkun. Illu heilli.

Að vissu leyti skilur maður stöðu byggðasamlagsins varðandi hleðslu á rafvögnunum. Hvar á hún að vera? Í fyrstu hlýtur Hlemmur að vera hentugur staður en erfitt gæti verið að réttlæta kostnaðinn við að koma upp hleðslustöð þar þvi flutningur vagnanna þaðan stendur fyrir dyrum á allra næstu árum.

Í Mjóddinni stoppa leiðirnar stutt við svo erfitt gæti verið að hafa hleðslustöðina þar.

Þá eru til svokallaðar þakhleðslustöðvar sem ná að hlaða vagninn í allt að 80% á undraskömmum tíma. Slíkar stöðvar útheimta þó mikið rafmagn og eru eflaust dýrar í uppsetningu.

Hvað sem því líður er heldur slappt að rafvagnarnir nái ekki að vera í notkun frá morgni til miðnættis en skipta þarf þeim út á miðjum degi og hlaða þá uppi á Hesthálsi.



Bloggfærslur 17. júlí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband