Með Gylforce-inn í grennd
gleður hal & sprund.
Þokkaleg var mín þrennd
þessa góðu stund.
Dr. Gylforce var á vappi við Ægisíðu þeirra Reykvíkinga í enn einu blíðviðrinu, hvar hann endaði í þremur yndislegum vögnum með þremur indælum leiðum. Nema hvað.
Ellefan með bros á brá
bætir mína glóru.
Huggulegur ilmur frá
hennar pústum stóru.
Gylforce-inn ætlaði að mjaka sér með leið 11 frá Ægisíðunni að Mjódd en eins & opt áður breytti hann um kúrs á miðri leið. En ekki hvað???
Dr. Gylforce sté út við Hlemmtorgið & spígsporaði þar drykklanga stund í blíðunni. Doksi kallinn skáskaut sér svo inn í fjarkann að Hamraborg þeirra Kópvæginga.
Tímaáætlanir vagnanna voru til fyrirmyndar enda ekki margir vagnverjar á ferð að þessu sinni aukinheldur sem opt reynist rólegt yfirbragð yfir þessum gulu vinum okkar á sunnudögum. Hvað um það.
Til þess að komast í Stútulautarselið hóaði dr. Gylforce í leið 28 & gekk greiðlega úr Voginum fagra yfir í gettóið á mettíma.
Vagnaunaðurinn ríður ekki við einteyming - maður lifandi!
Samgöngur | 21.7.2019 | 21:27 (breytt kl. 22:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 21. júlí 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar