Hinn mildi & miskunnsami dr. Gylforce mjakaði sér á vit vagna í gær, hvar hann tók hús á einum sænskættuðum vini sínum á leið leiðanna, leið 1. Maður lifandi!
Leikar hófust hjá dr. Gylforce í miðstöð & meginaðsetri okkar Breiðhyltinga; Mjódd. Doksi kallinn gerði sér far með Costco-vagninum á leið 21 sem jú - líkt & fyrr - tefst aðeins við Kauptúnið.
Dr.-inn spáseraði aðeins suður í Firði, spjallaði við hafnfirzka vagnverja, hvar hann sá hinn sænskættaða Scania Omnilink á leið leiðanna, leið 1. Wú-hú!
Vagn þessi er orðin 14 vetra gamall, nokk lúinn en á þó talsvert inni. Vagnstjórinn var hinn kurteisasti - í fyrstu - & verjar margir eins gjarnan er á þessari fjölmennu leið.
Sá sænski ók greiðlega upp Hverfisgötuna & nálgaðist Hlemminn. Við bíó Paradís er stoppistöð & þar ýtti ungmenni - þéttingsfast en þó fimlega - á stanzrofann en þó heldur seint.
Sá guli lullaði fram hjá kvikmyndahúsinu. Pilturinn stóð upp og bað vagnstjórann að stöðva. "Nei, þú ýttir of seint," svaraði sá við stýrið en var í lófa lagið að stoppa enda ekki mikill hraði á Hverfisgötunni. Þetta var bara spurning um smá sveigjanleika & þjónustulund. En, ó - nei.
Já, vagnstjórinn var í skyndi orðinn þrályndur & þver í skapi; stirfinn við stýrið, grámyglulegur & geðstirður. Líklega er byggðasamlagið Strætó ekki þjónustufyrirtæki í hans huga, heldur vinnustaðurinn hans.
Uss & svei - svona gjöra menn ekki.
Einn stirfinn við stýrið
staðfastur en ókyrr.
Að ýta - unglingsdýrið
átti að gera fyrr!
Flokkur: Bloggar | 17.8.2017 | 11:01 (breytt kl. 11:23) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.