Krankleika kennir ...

24989571 10155298904248348 111978073 nKominn er úr hverri spjör
krankleiki hann hissir.
Ljúfi doksi lagstur í kör
af leiðum sínum missir.

Hinn vagnmáttugi & veraldarvani dr. Gylforce er með böggum hildar, hvar hann hefur lagst í kör helgi þessa & kemst eigi út á meðal vina sinna, vagnanna. 

Í vikunni, þegar heilsunnar naut við, hélt doksi kallinn á vit vagna. Það gladdi hans gamla hró að sjá grænleit jólaljós í einum góðum Irisbus Karosa á leið 3.

Dr.-inn sté inn í þristinn við Stútulautarselið sitt & ætlaði einungis með honum að Mjódd okkar Breiðhyltinga. 

Það breyttist snarlega þegar jólafílingurinn umlék doksa kallinn & hélt hann sönglandi jólalög alla leið að endastöð við Hlemmtorg með vagninum, sér til ánægju - öðrum til ama.

Nema hvað.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband