Á dánardegi dýrlings ...

28Hinn dásamaði & drottnaði dr. Gylforce hélt vitaskuld upp á dánardag hins heilaga Þorláks, sem ku vera okkar eini dýrlingur & hélt á vit vagna. En ekki hvað???

Dr.-inn gekk að þessu sinni að sínu nýja Mekka, Mjóddinni, en fann þar hvörgi þá kæstu, hvar hann hélt áfram í miðborg okkar Reykvíkinga með vinum vorum - vögnunum. Nema hvað.

Dr.-inn sporðrenndi Tindabikkjunni & lagði svo leið sína með leið 3 að Mekka, hvar hann langaði að taka leið 28.

Töluverðar breytingar verða á leið 28 þann 7. janúar þegar vagninn hættir að aka niður í Mjódd. Leið 2 mun taka við kefli hans & verður fróðlegt að sjá útfærslu byggðasamlagins á breytingum á leiðum 2 & 28 í efri byggðum Kópavox. Hvað um það.

Enda þótt langt sé í þann sjöunda er nokk ljóst að þetta var síðasta ferð doksa kallsins með leið 28 frá Mjóddinni. Eins & vera ber kom Hollendingurinn fljúgandi - VDL-vagn frá Kynnisferðum - & sýndi doksa efri byggðir, hvar dr.-inn þrýsti þéttingsfast - en þó fimlega - & umfram allt - tímanlega - á stanzrofann & hélt glaður í bragði í Stútulautarselið sitt.

Amen.

Ég hélt í mína hinstu för
með Hollendingi vænum.
Eptir kæsta með hnoðmör
- helvíti grænum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband