Í vagna dreif sig með sitt der
sem doktorsins er iðja.
Framhjá Smáralind nú fer
við fáum Mammon að tilbiðja.
Hinn hugljúfi & heldri dr. Gylforce heldur áfram að kanna leiðabreytingar byggðasamlagsins, sem tóku gildi síðastliðinn sunnudag, hvar komið var að hinni tuttugustu & fyrstu leið. Nema hvað.
Dr. Gylforce hóaði í leið leiðanna, leið 1, við Hamraborgina & hélt rakleiðis með 151 Crosswayvagninum að Firði, hvar leið 21 tímajafnar sig.
Leið 21 ekur frá Firði að Mjódd, með viðkomu í Kaplakrika, Kauptúni & fer nú um Smárahvammsveg & framhjá Smáralindinni. Leiðin sleppir krók um Fjarðarkaup & Slökkvistöð en bætir við sig góðum spotta í Kópavoginum eins & fyrr segir.
Áður nam vagninn staðar við Vífilsstaði & síðan ekki fyrr en í Mjódd okkar Breiðhyltinga.
Þetta er góð breyting á leið þessari þótt vissulega sé eptirsjá af Skútu-, Hóls- & Bæjarhrauni þeirra Gaflara.
Yfir&út!
Flokkur: Bloggar | 9.1.2018 | 20:41 (breytt kl. 20:44) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.