Nýir vagnar - nú verð ég ær
notalegra að þjóta.
Meistaravellir - Mosfellsbær
munu þeirra njóta.
Hinn fráleitt iðjulausi & drabbsami dr. Gylforce hefir hapt hljótt mjög um sig undanfarið, hvar flensuskítur & annað fokk hefir sótt að doksa kallinum. Maður lifandi.
Dr. Gylforce hefir þó verið sem eilífur augnakarl í vögnunum - vinum vorum - eptir að hann komst á lappir. En ekki hvað???
Samkvæmt fréttum hefir verktakinn inn við sundin lent í kröppum dansi undanfarið vegna tíðra bilana vagna.
Kynnisferðir á kamrinum
Þessi váfrétt leiðir hugann óneitanlega að hinum hollensku VDL-vögnum sem eru 75% af vögnum Kynnsiferða (eða voru réttara sagt). Þola þeir ekki rysjótta tíð; rok & rigningu???
Aukinheldur spyr doksi sig í sífellu; hvernig mun þá rafvögnunum fjórtán, sem væntanlegir eru á vordögum, reiða af á veturna???
Hvað um það.
Kynnisferðir hafa nú fengið 10 nýja 12 metra langa Iveco Crossway sem segir doksa kallinum að þeir séu ekki alltof hrifnir af Hollendingnum sökkvandi!
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
301-330 VDL Vagnar,
331-340 Iveco stuttir vagnar,
341-350 Iveco vagnar af hefðbundinni stærð.
Jón Þórarinsson (IP-tala skráð) 14.3.2018 kl. 18:07
Hárrétt Jón, en af hverju skyldi Kynnisferðir hafa pantað langa Iveco vagna í stað þess að fjölga VDL-vögnunum? Eru þeir ekki nógu ánægðir með þá???
Dr. Gylforce, 14.3.2018 kl. 22:53
Þessir VDL vagnar hjá eru nokkurs konar harlem týpur og svo eru vatnsdælurnar oft að fara í þessum vögnum.
Iveco vagnarnir torka meira.
Það var þegar að ákvörðun lá fyrir af hálfu strætó-bs um láta Kynnisferðir taka við leið-15 í Október eða Nóvember á seinasta ári þá þurftu þeir að panta 10 vagna strax um leið & þessi ákvörðun lá fyrir & að þeir myndu taka við leið-15 7.Janúar síðast liðinn.
Kannski hefur þetta líka verið út af því að Iveco vagnar eru orðnir svo margir á strætó markaðnum á Íslandi.
Jón Þórarinsson (IP-tala skráð) 15.3.2018 kl. 18:42
Kynnisferðir fengu Iveco vagnanna á svo góðum kjörum þessa vegna vorum þeir pantaðir núna í vetur.
Jón Þórarinsson (IP-tala skráð) 18.3.2018 kl. 14:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.