Fjarri verið vögnum
viðþolslaus af eymd.
Fótspyrnu nú fögnum
flatneskja öll gleymd.
Hinn fjörugi & frakki dr. Gylforce, sem fráleitt er Frakki, var meðal vina vorra, vagnanna, á þjóðhátíðardegi vorum hinn seytjánda þessa mánaðar. Nema hvað.
Doksi kallinn vappaði með litla vagnverjann á menningartorfu þeirra Kópvæginga, hvar í skyndi kom skýfall mikið. Þá einhentu feðgar sér í leið 35 í Voginum fagra & tóku góðan hring. En ekki hvað???
Leið 35 lenti í alls kyns drolli & doki vegna hátíðahaldanna & fengu feðgarnir unaðsrúnt um gervallan Voginn á rúmlega 40 mínútum í stað hálftíma.
Það reyndist hið besta mál hvar votviðrið var á bak & burt er þeir stigu út úr vagninum á sama stað, Hamraborginni háu & fögru.
Yfir&út!
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 118882
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.