Lúrt á ljósum ...

z z zÁ ljósunum hann lúrði
langaði í sveim.
Á kontór sínum kúrði
komst í draumaheim.

Lúrt á ljósum

Hinn léttleikandi & lærði dr. Gylforce las fréttina hér fyrir ofan & minntist þess að hafa lent í svipuðu tilviki. Einhverju sinni dottaði vagnstjóri í tímajöfnun & varð vagnverji einn að ýta við honum. Hvað um það. Vonandi náði þessi góðum mínútum til þess að hressa sig við & halda áfram för. Nema hvað.

Það voru hinsvegar öngvin þreytumerki á vagnstjóranum sem ók dr.-num á leið 3 í gær. Ó-nei.

Það gladdi hið gamla hró dr.´s óskaplega að sjá rafvagn á vaktinni á sunnudegi.

21993126 1406650672737858 1490986751407725288 oEina sem hissar Gylforce-inn er að upplýsingataflan er enn ekki komin í gagnið. Hin íðilfagra rödd Herdísar grýlu heyrðist þó sem er bót í máli en byggðasamlagið verður að kippa þessu í liðinn hið snarasta. 

Koma svoooooo!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband