Skriplar stjórnin á skötu ...???

Stjórnin skriplar á skötu
undan skýringunum sveið.
Ber keim af Forsætis-Kötu
með keyrslu vel af leið.

Neikvæður niðurskurður

Dr. Gylforce hefir undanfarið fjallað um fyrirhugaðar skerðingar á hinu lostfagra leiðakerfi höfuðborgarsvæðisins. Doksi kallinn hélt reyndar að stjórn byggðasamlagsins ætti eptir að samþykkja tillögurnar endanlega en svá virðist vart vera. Hvað um það.

12Ferns konar skerðingarnar hefir stjórnin í hyggju. Óþarfi er að tíunda þær hér, reyndar hefir doksi minnst á nokkrar af þeim í öðrum færslum. Nema hvað. 

Mestu vonbrigðin í "hagræðingaraðgerðunum" eru líklega þau að draga úr tíðni á sumrin á þremur leiðum, 18, 24 & 28. Stjórnin réttlætir það með því að segja að lítil notkun hafi verið á þessum leiðum yfir sumartímann. Það má vel vera. En eftir hvað??? Eitt sumar??? WTF!!! Var ekki möguleiki á að hafa tíðnina örari nokkur sumur í röð & taka þá ákvörðun um framhaldið???

131Hér virðist stjórnin þrjóta öreindið. Illu heilli. Vissulega eru miklir fjármunir undir en að bjóða upp á 15 mínútna tíðni á þessum þremur leiðum eitt sumar & slá það síðan út af borðinu er ekki mjög stórmannlegt. & þaðan af síður til þess fallið að fjölga vagnverjum.

Vonandi hættir stjórn byggðasamlagsins þessum handahófskenndu vinnubrögðum & reynir að bæta þjónusta & auka tíðni en draga ekki svo alltaf í land.

Hvað ætli verði um 7,5 mínútna tíðnina á annatíma sem stefnt er að árið 2020 á fjölförnustu leiðunum???

large_Straeto_250x256Það er löngu tímabært að byggðasamlagið leiti allra leiða til þess að bæta þjónustuna & fjölga vagnverjum & láti allan hringlandahátt lönd & leið. & hana-nú!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband