Ömurð Oddeyringa ...

57726535_310930282936376_306259570823528448_nDagar tveir ömurð ein
öngvinn er þá vagn.
Endalaust vol & vein
virkilegt bölv & ragn.

Undirskriptir um breytingar

Það er ljóst að tíðni vagna hér nyrðra skorar ekki hátt hjá hinum létta & netta dr. Gylforce. Maður lifandi!

Á þjáningardeginum mikla hugði dr. Gylforce taka leið 6 við Hafnarstrætið. Nema hvað.

Vagninn á að koma þar ca. 55 mínútur yfir heila tímann. En ekkert gerðist.

57415238_428905894539102_8021642506716315648_nDr. Gylforce beið & beið - & beið & beið. Þá fékk hann uppljomun & uppgötvaði; líklega er öngvinn akstur hvorki á föstudaginn langa né páskadag hér nyrðra.

AlbumImage (12)Illu heilli.


Sem betur fer var dr. Gylforce sem eilífur augnakarl í metanvagninum á skírdag & tók nokkra unaðshringi. En ekki hvað???

Þessi tíðni nyrðra - maður minn! Hér verður að gera betur enda öngvu líkara en að hluti af íbúum vilji aukna þjónustu eins og sjá má í slóðinni efst.

Amen.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband