Reitur & hæð ...

1037458Fólki á hæðinni fínu
fjölgar saman smám.
Betra fyrir Borgarlínu
bölvað fyrir nám.

Sjómannaskólareitur & Veðurstofuhæð

borgarlínanReykjavíkurborg heldur áfram þéttingarstefnu sinni & hyggst á næstu misserum breyta Sjómannaskólareitnum og Veðurstofuhæðinni í byggð. Nema hvað.

Nú hefir verið samþykkt breytingartillaga við aðalskipulag svæðisins hvar gert verður ráð fyrir enn fleiri íbúum á svæðinu en í fyrstu.

StodinÞað mun hafa góð áhrif á fyrirhugaða Borgarlínu sem verður að öllum líkindum allt þarna í kring. Hvað um það.

Aukinheldur hefst nú Strætó bs. á næstunni handa við að aðlaga leiðakerfi sitt að að Borgarlínunni & hefir sett starfshóp á laggirnar. 

Spennandi - en ekki hvað???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband