Fjas fyrir fjölmiðla ...

kvart og kvein

Kolbrúnu er tamt að kvarta
kemst á stóra sviðið.
Með nöldri reynir að narta
í neikvæða liðið.

Dr. Gylforce finnst alltaf jafn merkilegt hve fjölmiðlafólk er fljótt að hoppa á hinn svokallaða neikvæða vagn. Það er líklega eini vagninn sem dr. Gylforce vill ekki sjá neins staðar! Burt með hann!!!

Í fréttum gærdagsins skeiðaði borgarfulltrúi Flokks fólksins fram með "stórfrétt" þess efnis að athugasemdir/ábendingar séu tæplega 9000 á undanförnum þremur árum hjá Strætó bs.

20140831123330-5c006d5cSumsé, um 3000 á hverju ári.

Áður en lengra er haldið skal tekið skýrt fram að dr. Gylforce tengist Strætó bs. ekki á nokkurt hátt, aldrei unnið þar, setið í stjórn eða neitt þess háttar.

Þrjúþúsund er há tala en í hvaða samhengi er hún? Hepði ekki verið ráð að segja frá í fréttinni að Strætó bs. flytur 11,4 milljón farþegar/vangverja á hverju ári? Að byggðasamlagið hefir 125 vagna á sínum snærum á annatíma akandi svo marga kílómetra að dr.-inn kann ekki að nefna hana???

M.o.ö., að mati dr.-ins virðist borgarfulltrúinn einfaldlega ekki gera sér grein fyrir umfangi byggðasamlagsins & klykkir út með því að halda að athugasemdirnar ættu að vera um 100-200 talsins.

Með neikvæðni að vopni nær þó fulltrúinn eyrum fjölmiðla, gagnrýnir meirihlutann í Reykjavík óbeint & skorar örugglega hátt hjá kjósendum sem líður svo vel við að heyra neikvæðar fréttir. 

Vissulega er þó alltaf hægt að gera betur. Það er upplifun sá er hér párar að á allra síðustu árum hafi Strætó bs. gert skurk í að bæta þjónustu sína, tekið upp gæðakerfi & reynt virkilega að bæta ímynd fyrirtækisins. 

Vonandi verður framhald á því.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband