Sænska veikin ...

IMG_20191028_154833Einatt þegar dr. Gylforce heldur á vit vagna virðist hellast yfir hann einhvers konar "sænsk veiki" hvar hann einfaldlega verður að eiga þrásetu & langdvöl í sænskættuðum strætisvagni. Nema hvað. 

Svona er víst sænska veikin
ef vel er að gáð.
Algjörlega illa leikinn
alger neyð í bráð.

Vagnar frá Svíaríki mega reyndar muna sinn fífil fegurri hvar þeir óðum eru að týna tölunni á vígvöllum veganna.

IMG_20191028_154902Örfáir Scania vagnar eru eptir & enn færri Volvoar. Illu heilli.

Sem betur fór voru tveir sænskættaðir vagnar á vachtinni á leið 4 hér í gettóinu nú síðdegis. 

Dr. Gylforce beið öngvra boða; hann gjörðist kvikinskur & kærulaus á komandi verkefni & kúrði kátur & keikur í sínum sænsku vögnum. En ekki hvað???

Góðu fréttirnar í vagnamálum eru þær að nýjasti vagninn í flota Strætó bs. er sænskættaður & má búast við hvíta 101 metan-beljakanum á vígvöllum veganna á allra næstu dögum.

Það verður gaman.

Yfir&út!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband