Bráðabirgðabiðstöðvar ...???

918-838cd39cc9Til bráðabirgða stoppar
breytist vonandi lítt.
Taumlaust ruglið sig toppar
trauðla er það nýtt.

917-4ad3321fdfNú hefir verið komið upp nýjum bráðabirgðabiðstöðvum í stað hringtorganna svá hvorki vagnstjórar né bílstjórar á eptir þeim gerist nú lögbrjótar. Það viljum við ekki. Nema hvað.

Að öðru leyti er umræðan skrýtin í ljósi þess að biðstöðin við Hagatorg hefir verið þar í áratugi án þess að einhver hafi fett fingur út í það. Aukinheldur man dr.-inn ekki eptir umræðu um hversu stórhættulegt það hafi nú verið að láta vagninn stöðva þarna í öll þessi ár.

Heyr á endemi - yfir&út!


Myndir: strætó.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband