Skynja í vagni vinarþel
vagnverjarnir blíðir.
Löngum stundum í strætó dvel
sterkir eru & þýðir.
Hinn mjúki & meyri dr. Gylforce átti munúðarfullar & magnaðar ferðir meðal vina vorra - vagnanna - í gær, hvar hann dvaldi löngum stundum þristinum & fjarkanum. Enda hvað segir ekki máltækið góða? Tvistur, þristur - Jesús Kristur. Nema hvað.
Dr. Gylforce reis upp við fyrsta hanagal í gær, hvar hann hóaði í leið 4 um klukkan rúmlega sjö við Stútulautarselið sitt.
Að þessu sinni skeiðaði um Seljahverfið hinn huggulegasti 155 Karosavagn með urmul vagnverja. Það er greinilegt að Breiðhyltingar taka daginn snemma!
Dr.-inn hreyfði sig hvergi í fjarkanum unz hann áði við Hamraborg þeirra Kópvæginga. Þá var tími til kominn til að arka út & taka hús á Iveco Crossway vagni á leið 35 & halda að mennta- & menningarsetrinu við Kársnes & Kastala.
Amen.
Bloggar | 24.1.2017 | 15:51 (breytt kl. 15:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 24. janúar 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar