Leið leiðanna - snögg & snör ...

23482965_10155228284143348_1627627148_oÍ bæinn fór úr blogginu
brölti í einn vagn.
Snjall hann var í snattinu
snöggur að gera gagn.

Hinn taktfasti & tímanlegi dr. Gylforce tók andköf við mennta- & menningarsetrið hér við Fannborg í gær, hvar hann uppgötvaði að hann bráðvantaði að komast í verslun eina við Laugarveg.

Dr.-inn var ekki lengi að losa sig við ungviðð & einhenti sér á vit vagna. Góðu heilli er leið leiðanna, leið 1, með 10 mínútna tíðni á annatíma & því ekki lengi að koma. 

Skemmst er frá því að segja að dr. Gylforce tókst að renna í miðbæ okkar Reykvíkinga, arka inn í verslun eina & komast tilbaka í mennta- & menningarsetrið á rúmum klukkutíma.

Munar þar mestu að hafa vagninn á 10 mínútna fresti. Svo bætist leið 6 við í þessari dásemd eptir áramótin.

Vel gert vagnar - þið eruð án efa vinir okkar!


Bloggfærslur 15. nóvember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband