Í vögnum kraumar kraptur
kraptbirting tær.
Doksi þeim enn & aptur
ásjónu sína ljær.
Hinn spakvitri & sparhaldni dr. Gylforce viðraði sitt spikfeita sálartetur um helgina, hvar hann vitaskuld hélt á vit ævintýranna með því að halda í vagna. En ekki hvað???
Einn spakur spekingur sagði eitt sinn að vér mennirnir skyldum safna miklu spiki á sálina en halda líkamanum flottum & fitt; ríma spakmæli sú ágætlega við dr.-inn, hvar hann finnur hvernig fitan flæðir meir & meir innra með honum eptir því sem vagnaferðunum fjölgar. Maður lifandi!
Dr. Gylforce tók hús á hinum huggulega fjarka hér í grennd við Stútulautarselið. Það gleður ætíð hið gamla hró dr.´s hve vel er setið í leið 4, sérstaklega frá Mjódd okkar Breiðhyltinga yfir í Hamraborg þeirra Kópvæginga. Hvað um það.
Rúntur doksa karlsins var stuttur að þessu sinni, hvar hann hoppaði út í Hamraborginni & hélt í helgarvinnu sína við mennta- & menningarsetrið. Nema hvað.
Bloggar | 19.11.2017 | 10:58 (breytt kl. 11:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 19. nóvember 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar