Minni mengun í Mekka ...

imagesEi er strætó í straffi
í stórborginni hlýju.
Keyra nú um á kaffi-
korg, tólg & olíu.

Kaffivagnar

Hin unaðslega borg & Mekka doktorsins, Lundúnir, heldur áfram að bera höfuð & herðar yfir aðrar borgar, hvar vagnarnir sumir hverjir ganga nú fyrir kaffi! En ekki hvað???

171a73e0b9951750c9522b26f13b4d42London hefur upp á að bjóða rúmlega 9500 vagna á degi hverjum, með yfir 700 leiðum & ríflega 6 milljónir vagnverja sem ferðast með þessum unaði daglega. Spáum í því vagnverjar!

Nú hafa þeir haldið áfram að þróa vistvæna orkugjafa á vagnana & getur dr.-inn vart beðið eptir næstu ferð sinni til Mekka.

Maður lifandi!


Bloggfærslur 23. nóvember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband