Komið budget á borgarlínu
hjá borginni.
Samt er það bara pinku pínu
pons af heildinni.
Viðtal við borgarstjórann
Hinn þjáði & þreytti dr. Gylforce hefir lítt sést í vögnunum undanfarið vegna flensu, hvar hann þarf að gera bragarbót á því. Nema hvað.
Doksi kallinn verður að hætta þessu gaufi & fara að gefa vögnunum - vinum vorum - meiri gaum. En ekki hvað???
Doka, dunda, tvínóna,
drattast, gaufa.
Slóra, slæpast & lóna
slugsa, paufa.
Í eymingsskap sínum sá dr.-inn gott viðtal við borgarstjórann sinn, hvar hann sagði frá því að á fimmta milljarð króna væru eyrnamerkt Borgarlínunni á næstu árum.
Sú tala gæti aukinheldur hækkað ef ríkið kæmi inn með framlag á móti.
Það eru spennandi tímar framundan & vonandi heldur samstaða sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu áfram, hvað Borgarlínuna varðar, eptir kosningarnar í maí 2018. Maður lifandi!
Bloggar | 28.11.2017 | 14:05 (breytt kl. 14:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 28. nóvember 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar