Langt er síðan lét ég vaða
í lausavísna rugl & bull.
Vagnverjum þó ei til skaða
því veröldin er gáskafull.
Hinn dymbaði & dyggi dr. Gylforce dreif sig í upphafi dymbilvikunnar til þeirra Gaflara, hvar hann hitti fyrir hina geðþekku hverfaleið númer 44.
Leið 44 ekur aðeins eptir hádegið virka daga í Firðinum. Góðu heilli er leiðin sú með korterstíðni & sjá Hópbílar um aksturinn. Þeir bjóða oss vagnverjum yfirleitt upp á 214-217 Irisbus vagna sína. Hvað um það.
Leið 44 ekur í nokkra króka & kima sem vekur upp spurningar. Vagninn brunar að Brekkuási, tekur þar hring & fer aptur til baka. Sama er uppi á teningnum varðandi Ásvallalaug. Þar ætti byggðasamalagið að hafa í huga að leið leiðanna, leið 1, brunar þarna framhjá með góðri tíðni & því spurning hvort hverfaleið þurfi að aka þarna um líka.
Doksi veit að leiðakerfið í Firðinum er í endurskoðun enda ættu þeir að reyna að hafa leið 44 sem hringleið & draga úr þessum útúrdúrum.
Það verður spennandi að sjá hvernig Göflurum tekst að leysa leiðakerfismálin sín & kynna nýtt kynngimagnað kerfi í haust, vagnverjum til handa.
Yfir&út!
neðsta mynd; fjardarfrettir.is
Bloggar | 11.4.2017 | 12:42 (breytt kl. 12:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 11. apríl 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.5.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar