Doktor Gylforce tvistinn tók
tjúttaði á hans vit.
Úr Sölum yfir í Sel er djók
sömu nánast hnit.
Hinn dáðlausi & dæsni dr. Gylforce drattaðist á vit vagna í strekkingi gærdagsins, hvar hann komst í tæri við hina geðþekku & stuttu leið 2. Maður lifandi.
Dr. Gylforce sté inn í hina aðra leið við Hlemmtorg okkar Reykvíkinga. Doksi kallinn fýsti að vita hve lengi hann yrði frá efri byggðum Kópavogs yfir í Seljahverfið, þ.e.a.s. með því að ganga úr Salahverfinu yfir í Selin sælu.
Í upphafi ferðarinnar vorum vér vagnverjar fáir; óðara fjölgaði í Irisbusvagninum hvar hann var orðinn smekkfullur á leið upp í Hamraborgina háu & fögru. Dr.-inn hélt för áfram enda á leið í 201 að þessu sinni.
Dr. Gylforce þrýsti þéttingsfast, en þó fimlega - & umfram allt tímanlega - á stanzrofann í leið 2 rétt áður vagninn áði við Ársali.
Við tók 7-8 mínútna labb yfir í fegursta Stútulautarselið hér á landi á - & þótt víðar væri leitað.
Yndislegt.
Yfir&út!
Bloggar | 11.5.2017 | 15:06 (breytt kl. 15:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 11. maí 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.5.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar