Mér dylst það ekki,
að dagar kulna,
að verjinn þvaðri
& vagnar gulna,
& leirskáld kveða
- óttaleg kvöð!
Ég óðum nálgast
nýja stoppistöð.
Hinn lausgeðja & leirskáldaða ljúfmenni, dr. Gylforce, liggur ei á liði sínu þegar leiðir eru annars vegar.
Dr.-inn fagnar mjög, hvar Eyfirðingurinn hefir tekið sig til & fjárfest í tveimur nýjum strætisvögnum. Kominn tími til! Maður lifandi!
Annar þeirra er hinn klassíski Iveco Crossway, en urmul þeirra má finna hér sunnan heiða, & svá hinn títtnefndi Scania Citywide.
Það má setja út á eitt & annað hjá Norðlendingum. Nýju vagnarnir eru appelsínugulir að lit en gömlu vagnarnir hlandgulir. Það er ekki flott að vera með tvo liti í gangi en líklega er verið að skipta þeim pissugula út sem er vel.
Þá verða Norðlendingar að taka sig til & bæta þjónustuna um helgar. Aðeins einn vagn af fjórum ekur laugardag og sunnudag & hefir ekki akstur fyrr en um hádegisbil. Steininn tekur svo úr þegar akstri lýkur um kvöldmat!!! Halló, halló - öngvar ferðir á morgnana & á kvöldin??? WTF?!?!
Enda þótt að þjónustan sé "ókeypis" er þetta ekki boðlegt. Til að mynda kom þetta sér illa fyrir dr.-inn, hvar hann var í hálfgerði helgarferð nyrðra & gat lítið notfært sér vagnana & komist í kynni við norðlenska vagnverja.
Þessu verður að breyta. Punktur.
Bloggar | 6.11.2017 | 14:09 (breytt kl. 14:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 6. nóvember 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar