Ódrukkin óheppni ...

20120612032338-08463d10
Hinn óskáldlegi & iðjulausi dr. Gylforce reyndi enn & aptur að komast í kynni við hinn spánnýja & spennandi VDL-vagn er ekur eins & burgeis & dólpungur um koppagrundir Kópavox á leið 28 um þessar mundir. Nema hvað.

Dr.-inn sté stórlátur inn í leið 28 um níuleytið í morgun við Salalaug & freistaði þess að setjast inn í dýrðina. Svo varð nú ekki, því miður. VDL-vagninn virðist aðeins aka á annatíma & missti doksi því af honum enn & aptur. Hvað um það.

Þess í stað fékk dr.-inn hinn sænskættaða 306 vagn & leið með honum á leið, alla leið að Mjódd þeirra Breiðhyltinga. Dr.-num var svá eigi þar til setu boðið & fékk 308 vagninn til baka úr Mjóddinni áleiðis að Hörðuvöllum.

Ævintýr með Vaff-Dé-Ell verða því enn að bíða um sinn en hve lengi? Hve lengi???

Óheppnin eltir doksa nú 
aldrei í nýjan kemst.
Allsgáður situr & edrú
& afmaxaður fremst.


Mynd: http://citybus.piwigo.com

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband