Ef þú fyllist ferðaþrá
ferðastu með lagni.
Ferð þín byrjar ætíð á
eðal strætisvagni.
Spígsporaði við Spöngina
spenntur þar lengi beið.
Gylforce-inn varð glaðsinna
sá gyllti var á leið!
Hinn gróni & fráleitt gisni dr. Gylforce var gæfusamur & glaðsinna í kvöld, hvar hann komst í hinn geysi fallega gullvagn byggðasamlagsins, Strætó bs. Maður lifandi!
Það er greinilegt á öllu að með tilkomu nýrra markaðsmanna á skrifstofu Strætó bs. hefir starfsemi og ímynd vagna & vagnverja tekið stakkaskiptum. Samskiptamiðlar hafa verið virkjaðir - vagnverjum til handa - & nú bætir um betur með skemmtilegri skreytingu á einum af Iveco Crossway vögnunum - en ekki hvað???
Vagn númer 148, sem hefir einatt tekið slaginn á leið 2, var á leið 6 í kvöld þegar dr. Gylforce beið öngvra boða. Aldeilis ekki.
Dr.-inn einhenti sér í sexuna við Spöng & sat sem fastast í þeim gyllta alla leið að sjálfri endastöðinni, Hlemmi.
Á dögunum var 174 Crossway vagninn skrýddur í tengslum við Hönnunarmars & ekur nú fagurlega fjólublár um vígvelli veganna.
Þetta er skemmtilegt, mitt hávelborna byggðasamlag.
Meira svona!
Mynd 2: FB síða Strætó
Mynd 4: straeto.is
Bloggar | 1.4.2017 | 23:29 (breytt kl. 23:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.5.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar