Fjarkaflug ...

20140831123352-8b781c44Hinn veraldavani & viljugi dr. Gylforce er líkt & lesendur þekkja víkingur mikill, vagnverji og bloggari ofan úr fegurstu laut jarðarinnar, Stútulautinni.

Einhverju sinni um helgina þvarr doktornum öreindið; nennti eigi lengur að sinna störfum sínum & þoldi ekki endalaust við í friðsemd Sela & Stúta. Nema hvað. 

20140831123330-5c006d5cDoksi vildi komast á vit vagna.

Þegar dr.-inn sér þessa appelsínugulu eðalgimsteina á vígvöllum veganna gerist eitthvað. Það verður vart útskýrt. Maður lifandi.

Dr. Gylforce hefir einvörðungu tekið þrásetur & langdvalir í leið 4 undanfarna þrjá daga; gaman var til að mynda að vera í fjarkanum í morgun sem lagði úr vör um kl. 7:21 úr Mjódd okkar Breiðhyltinga. Var Irisbus-inn sá á leið í Hamraborg þeirra Kópvæginga. 

Urmull vagnverja var með í för, hvert sæti skipað með tiheyrandi hrútalykt & huggulegheitum.

Unaðslegt - en ekki hvað???

Um helgina ég laug & laug
látlaust var til ama.
Spenntur inn í fjarkann flaug
& fór hann að dásama.




Neðri myndir 2: citybus.piwigo.com


Hughrif í húminu ...

21291772 10155058611158348 41280906 nHinn kostavendni & kræsni dr. Gylforce kom sér á vit vagna í gærkveldi, hvar hann var nú nánast kominn á beddann snemmindis á frjádagskvöldi en snérist hugur. Nema hvað.

Það var dúnalogn & dimmt þegar dr. Gylforce dróglaðist inn í leið 3 hér við Stúta & Sel. Það vakti gjörhygli Gylforce-ins að þristurinn áði við Mjódd okkar Breiðhyltinga í níu mínútur & beið eptir hinum leiðunum. 

Samkvæmt tímatöflu á leið 3 að bíða í mesta lagi í fjórar mínútur & því ljóst að vagninn var fimm mínútum á undan áætlun.

21269874 10155058611218348 1028388368 nAukiheldur má velta fyrir sér að ef þristurinn biði ekki eptir hinum leiðunum; þá gæti hann verið kominn langleiðina að Landspítalanum á þessum níu mínútum. Það myndi hraða för okkar vagnverja umtalsvert. 

Gleymum þó eigi að hið lostfagra leiðakerfi byggir á skiptingu á milli vagna á mörgum stöðum & auðvitað í Mjóddinni. Það er ákveðinn kostur. Hvað um það.

Dr. Gylforce fékk Irisbus Crossway á leið 3 alla leið að Hlemmi & settist svo í leið 2 tilbaka. Þar var sama uppi á teningnum; vagnar númer 136 & 146 stóðu vaktina þetta kyrrláta & dimma kvöld.

Amen.



Hughrifin í húminu
við Hlemm & torg
ráku mig úr rúminu
í Reykjavíkurborg.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband