Blúsað brölt ...

23 6 aÁ Hafnfirðingum tók ég hús
í hrauninu & steinum.
Vagnabröltið reyndist blús
með bílstjóranum einum.

Í miðri kyrraviku er fátt betra en finna friðinn & hlaða batteríin meðal vina sinna, vagnanna. 

1015-508ba7bcfeDr. Gylforce tók hús á Hafnfirðingum eitt kvöldið en síðasta sumar gerbreyttu þeir leiðanetinu sínu. 

Þeir fækkuðu leiðum & lengdu þær & ekki annað að sjá en að þetta hafi verið til mikilla bóta. 

AlbumImage (1)Hinsvegar er vart marktækt að athuga hvort vagnverjum hafi fjölgað, hvar veiran skæða setur þar væntanlega strik í þann reikning. Nema hvað.

img_5225Dr. Gylforce var sem eilífur augnakarl í vögnunum þremur sem aka leið 21 að þessu sinni. Afar fáir voru á ferli & eitt sinn fékk doksi kallinn sérferð frá Firði að Mjódd okkar Breiðhyltinga. 

Máske eru allir í Geldingardölum???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband