Vífilsstaðavandræði ...

vifilstadaspitali2Við Vífilsstaði vandræði
virðist hunsað í dag.
Er svo klikkað kjaftæði
kippa með hraði í lag!

Í dymbil- & kyrravikunni sem senn rennur sitt skeið átti dr. Gylforce unaðslegar langdvalir & þrásetur í leið 21. Nema hvað.

vifilsstadirunnamedLeiðin sú var lengd síðastliðið sumar & ekur nú hin tuttugasta&fyrsta leið frá Mjódd okkar Breiðhyltinga, framhjá Smáratorgi, að Vífilsstöðum, Ikea, stoppar aðeins í Firði & heldur svo í Háholt þeirra Fjarðarmanna. En ekki hvað???

Við Vífilsstaðaspítala er aðkoma vagnsins afar furðuleg svá ekki sé nú dýpra í árinni tekið. Leið 21 þarf að snúa við á bílaplaninu við spítalann. Ef hinsvegar er þar krökkt af bílum lentir vagnstjórinn í kröppum dansi.

Leid_21Dr.-inn hefir nokkrum sinnum verið í vagninum hvar vagnstjórinn þarf að bakka & gera alls kyns hundakúnstir til þess að ná að snúa vagninum við. 

Vonandi nær byggðasamlagið að gera bragarbót á þessu fljótt & örugglega. Það er óviðunandi að vagninn sé að bakka þarna & helst þarf hann að hafa lítið hringtorg.

Yfir&út!



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband