Átta nú vilja áfanga
erlend firma flest.
Borgarlínan alllanga
látlaust verður best.
Átta erlend firmaÞað virðist vera töluverður áhugi hjá hinum ýmsu fyrirtækjum í Evrópu á því að reisa fyrsta áfangann af Borgarlínunni. Góðu heilli.
Öll hafa þau íslensk fyrirtæki sér til fulltingis sem er vel en endanlegt val á því rétta á að liggja fyrir í nóvember. Spennandi!Borgarlínan er samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu & ríkisins. Hún á að verða hryggjarstykkið í almenningssamgöngum hér á svæðinu & uppbyggð með umhverfisvænum hraðvögnum (Bus Rapid Transit - BRT).
Í fyrsta áfanga er stefnt að 25 stoppistöðvum samkvæmt fyrstu tillögum. Áfanginn verður þrettán kílómetra langur - Hamraborg/Ártúnshöfði - & er áætlað að taka hann í notkun árið 2023.
Yfir&út!
Samgöngur | 8.6.2020 | 23:30 (breytt kl. 23:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég bugta mig & beygi
bráðum kemst í feitt.
Sóttvarnarlæknir segir
svæðið má vera eitt.
Framdyr opnastFrá & með morgundeginum verður svæðið innandyra í vinum vorum - vögnunum - eitt eins & áður. Vagnverjar mega nú gjörast léttstígir & fara inn að framan eins & vera ber.
Þá er ekki úr vegi að rifja upp regluna; inn að framan - út að aptan. Maður lifandi!Dr. Gylforce einhenti sér vitaskuld í vagnana í gær & var ekki annað að sjá en að byggðasamlagið hafi tekið örlítið forskot á sæluna. Doksi kallinn gekk iðulega inn að framan er hann fékk sér far með leiðum 1, 3, & 4.
Yndislegt!
Samgöngur | 7.6.2020 | 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bátastrætó styð ég heitt
strætó líka - bæði.
Getur ferðum gjörla breytt
um Gufunessvæði.
Borgarstjóri kynnir bátastrætó
Doktor Gylforce tekur heilshugar undir með borgarstjóra vorum, hvar hann kynnti ásamt meirihlutanum í borginni hugmyndir um bátastrætó.
Ætlunin er að fá bátavagninn til þess að fara á milli Gufuness, bryggjuhverfisins & miðbæjarins - & jafnvel er Viðey líka inn í myndinni.
Þetta er góð hugmynd & afar spennandi - maður lifandi!
Bátastrætó var reyndur sumar eitt milli Akraness & Reykjavíkur en hlaut nú ekki sérstaklega góðar viðtökur hjá oss vagnverjum.
Vonandi kemst þessi hugmynd á koppinn & lofar doksi kallinn að vera duglegur að sækja bátavagninn heim ef af verður. Lofar!
Yfir&út!
Samgöngur | 2.6.2020 | 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hundrað skýli hafa nú
hárnákvæmt kerfi.
Ætli hugmyndin sé sú
að setja í öll hverfi?
Rauntímatöflur orðnar raunveruleiki
Í síðustu viku var mikið fagnaðarefni, hvar borgarstjórinn hleypti á stokkunum rauntímatöflu. Í framhaldinu verða sett svokölluð LED-biðskýli út um hvippinn & hvappinn & munu þau verða eitt hundrað talsins í árslok.
Hægt og bítandi eru því almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu að þokast í rétta átt.
Dr. Gylforce hefir lengi beðið eptir þessu enda afar þægilegt að vita hve langt er í næsta vagn.
Vel gert - & svo mun nýja greiðslukerfið - Klappið - líta dagsins ljós á næsta ári :)
Samgöngur | 1.6.2020 | 12:59 (breytt kl. 20:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.7.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar