Færsluflokkur: Spaugilegt

Þrúgandi þvottavélasleikur ...???

kissVagnverjinn vill góða nánd
vera kátur & keikur.
Í athöfninni er varla sánd
aðeins djúpur sleikur. 

Sleikur-inn

Vitaskuld eru vagnverjar misjafnir eins & þeir eru margir. Einn nokk þekktur Twittermaður & verji tísti á dögunum um reynslu sína af vagnaferð & virtist ekki vera par sáttur.

busses-2107-29954b7f4d9cbcdb83e3ea664db3b699@1xI sætinu fyrir framan hann var par sem var opt & einatt í sæmilega góðum sleik; virtist þetta trufla upplifun hans af unaðinum, illu heilli.

Dr.-inn tekur nú ekki undir þetta. Hann hefir endrum & sinnum setið í vögnum hvar amorinn svífur yfir vötnum (vögnum?). Honum finnst það bara fallegt & truflar hann ekki hætishót. 

Það var verra hér í denn þegar menn voru að gera þarfir sínar í næturvagninum sem þá ók frá Lækjartorgi upp í Hamraborg, austur Álfhólsveg að Mjódd & endaði suður í Firði. 

Í þeim ferðum gerðist margt mjög skrýtið enda voru þær ekki langlífar. Maður lifandi!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband