Færsluflokkur: Bloggar

Nýsköpunarvagninn ...

4CBCBE523A8963A68F88A156B68E7D38A04E7363D98FA1DE272514911A93A02A_713x0Huga skal nú að nýsköpun
njóta jöfra andans.
Forðast alla eftiröpun
auka hróður landans.


Gleðilega páska!

168917665_10158221455563348_1429625327831858120_nDymbilvikan var dásamleg
dýrðleg & án gáska.
Með glaum´ & gleði segi ég:
Gleðilega páska!



Spígsporað & spekúlerað ...

159518779_10158169214438348_3207713809967128229_oÍ heiðríkju ég hélt af stað
í Hamraborginni ljóða.
Getur Borgarlínan blómstrað
í bænum mínum góða???

Dr. Gylforce var óðara kominn í Hamraborgina háu & fögru þennan annars skýlitla en svala laugardag. Nema hvað.

linan 2Dr.-inn velti fyrir sér svæðinu eins & það verður með tilkomu Borgarlínunnar margumtöluðu. 

Í gegnum hjarta þeirra Kópvæginga koma tvær leiðir Borgarlínunnar til með að fara. Önnur þeirra ekur frá miðbæ að Vatnsenda, í gegnum hið fagra Kársnes, um Smáralind, sala- & kórahverfi. 

1212793Hin leiðin kemur til með að aka frá miðborginni alla leið að Völlunum í Firðinum. Það er ekki ósvipað leið leiðanna, leið 1, í núverandi leiðakerfi Strætós.

Aukinheldur verða tvær hefðbundnar strætisvagnaleiðir sem koma til með að stoppa í Hamraborginni. Þetta verða leið frá Ásgarði í Garðabæ, sem fer um Fífuhvammsveg, Dalveg og Hlíðarhjalla, í Hamraborgina, yfir brúna væntanlegu & endar í Háskólanum í Reykjavík.

Hin leiðin fer frá Hamraborg að Vatnsenda en í gegnum Nýbýlaveg, Mjódd, hluta af Seljahverfi & minnir seinni hluti leiðarinnar um margt á leið 2 nú til dags.

Í dag stöðva 6 leiðir í Hamraborginni en þeim verður fækkað niður í 4 (2 Borgarlínurleiðir & 2 strætisvagnaleiðir) en tíðni & ferðatími miklu miklu betri en við vagnverjar eigum að venjast.

Spennandi!




Flatpakkningavagninn fagri ...

135197391 252662099620057 7886766997831660082 nFlatpakkningar framleiðir
fylgihluti og mat.
Ódýrar lausnir útbreiðir
í IKEA-vagni sat.

135127147 310372940351184 6684189320531176977 nHinn hjartahlýi & hugljúfi dr. Gylforce hefir haft áhyggjur af því undanfarnar vikur að ná ekki að njóta bláa vagnsins svokallaða sem ekur aðeins á leið 21, Mjódd-Fjörður-Háholt Hfj.

135178607 438920107279338 5865362415253225491 nJújú, hér á Gylforce-inn við IKEA-vagninn sem kemur skemmtilega á óvart, sérstaklega að innan hvar stjörnur eru í loptinu ásamt ýmsu fleiru fallegu.

Líklegt má telja að í janúar hverfi þessi fallega skreyting á braut & því gott að hafa komist í kynni við vagn þennan.

Aukinheldur gladdi það hið gamla hró dr.´s að sjá að suður i Hafnarfirði er búið að koma upp forgangsljósum fyrir vagnana sem flýtir för þeirra til & frá Firði.

Vel gert - yfir&út! 


Mínútur máli skipta ...

122693365_272063770769055_7405952671024953474_n122751871_269730427717256_5152387707147966049_nMínútur máli skipta
miklu fyrir þig.
Götunni ætl´að lyfta
gjarnan á hærra stig.

Gamla hró dr. Gylforce gladdist hvar hann var á vappi suður í Firði þennan fallega & blíðláta sunnudag. Nema hvað. 

Doksi kallinn sá að í bígerð er að breyta götunni við Fjörðinn, setja umferðarljós & hleypa vinum vorum - vögnunum - strax til vinstri frá Firði.

Það mun stytta ferðatíma vagna & löngu tímabært að mati dr´s.

Vonandi lýkur þessum framkvæmdum sem fyrst svo vagnarnir geti ekið þarna um & "grætt" örlítinn tíma.

Yfir&út!


Skemmtilega skreytt skýli ...

122428845 286003979171213 107026875570892340 n122549345 400908087577564 8445341539224059176 nDoktorinn hinn háfleygi
hoppaði út við EffBé.
Skemmtilegt í skammdegi
sem skreytir mín helgu vé. 



Stóð í stappi ...

Grímulausir, glatað þrugl
gildir um ykkur sama.
Upp með maskann ekkert rugl
& endum þetta drama.

Grímulaus grínari???

121037055_10157824757448348_8068044941487097214_oÞað berast ekkert sérstaklega góðar fréttir af sumum vagnverjum, hvar þeir kjósa að nota ekki grímur inn í vinum vorum, vögnunum. Bera þeir því við að þeir hafi nú þegar fengið veiruna skæðu.

Hvernig á vagnstjórinn að vita það??? Það er ógjörningur.

Þess vegna verða allir verjar - nær & fjær - að setja á sig andlitsgrímu þegar þeir ferðast með unaðinum.

Koma svoooo - þetta er lítið mál!





Afarkostur yfirvofandi ...???

Skelfilegt er ef skerða á
skjótt á næstu misserum.
Þvílíkt lengi það tók að ná
þangað sem við erum.

Skerðing? NEI TAKK!

Í ljósi faraldurs & fárs kemur ekki á óvart að uppi séu hugmyndir um að skerða þjónustu Strætós. Illu heilli. 

51034543_384992932274059_6182374434955853824_nByggðasamlagið stendur frammi fyrir miklu tekjufalli sem jafnvel kemur til með að hlaupa á tugum milljónum, ef ekki meir. Hvað skal taka til bragðs?

Eitt er að eigendurnir, sveitarfélögin, leggi meira fé til rekstursins. Eflaust eru þau ekki spennt fyrir því hvar tekjur þeirra allra eru væntanlega að dragast saman. 

IMG_20191028_154833Þá er hinn möguleikinn; að skerða þjónustuna. Vonandi verður það þó ekki raunin eða í versta falli í svo litlu mæli að fáir vagnverjar finni fyrir því.

Vonum það besta.

Amen.


Nýtt leiðakerfi nyrðra ...

57338866 670386653419919 5805438677605679104 nGóðar fréttir berast oss nú frá Oddeyringum, hvar hinir regluföstu Akureyringar hafa hug á að einfalda leiðakerfið sitt & auka tíðnina. Vel gert!

Nyrðra hlýða allir reglum
123451582213932_stratot
Dr. Gylforce hefir nokkuð opt hér fjallað um leiðirnar norðan heiða & jafnvel minnst á óreiðukenninguna í því sambandi.

Enda þótt ókeypis sé í vagnana er það ekki nóg; huga þarf vel að leiðakerfinu & tíðninni sem & þeir hyggjast nú gera. & hafa m.a. fengið sérfræðinga að sunnan sér til fulltingis, SAS-ara!!! Heyr á endemi - hvur átti von á því??? 

AlbumImage

Aukin tíðni -   einfaldara kerfi

Aukum tíðni eins & í denn
eftirspurnina neglum.
Allir vita að Norðanmenn
alfarið fylgja reglum.



Brjóst & þristur - Jesús Kristur ...


Kominn er nú Kristur
í krappan dans.
Mun nú minn þristur
mynda hann sem trans.


Mikið fjaðrafok er nú þessa dagana vegna auglýsingar Þjóðkirkjunnar um Sunnudagaskólann yndislega. 

Frumkvöðlafræðingurinn frægi, Margrét Friðriksdóttir, finnur auglýsingu þessari flest allt til forráttu & til að bíta höfuðið af skömminni - að hennar mati - á að setja þessa auglýsingu á strætisvagna!

Dr. Gylforce er ekki sammála frumkvöðlafræðingnum & hlakkar einfaldlega til þess að sjá hinn brjóstgóða & fallega Krist veifa honum á vögnunum í Stútulautarselinu. 

Yfir&út!

Magga Frið gefur öngvum grið


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband