Færsluflokkur: Bílar og akstur

Allt klappað og klárt ...???

245814841_408333590890863_1265112332343502281_nklappidKlárt og klappað
komið af stað
allt afslappað
en ekki hvað???

Nýja greiðslukerfi hjá Strætó, sem hefir fengið nafnið Klapp, er nú komið í prófanir til þess að sníða síðustu agnúa af kerfinu, ef einhverjir eru.

bbbDr. Gylforce hefir fengið þann heiður að vera eitt af tilraunadýrunum. Vel hefir gengið að nota kortið & ekkert komið upp á ennþá hjá doksa kallinum en hafa skal í huga að ekki liggja margar ferðir að baki.

Það er norskt hugbúnaðarfyrirtæki sem annast uppsetningu Klappsins & svipar það mjög til Oyster kortsins svokallaða sem margir þekkja frá Lundúnum. 

Vonandi lítur Klappið svo dagsins ljós fyrir vagnverja á fyrstu mánuðum næsta árs.


Hlemmtorg ...

ahlemm





Meðan
strætógljáfægðir
gulir vagnar
með kolsvört
gúmmídekk
harðloka
hurðum
og hvílast

skunda ég
í átt að
skólavörðu

ramba
á rafskútu

fell á mitt
umhverfisvæna
fés.


Borgarferð með bestu leiðinni ...

106115026_2981157278620515_327574403310171024_o_1364729Borgarferð, betra verð
boðsferð sem rokkar!
Annálsverð, unaðsferð
eykur velferð okkar.

Byggðasamlagið Strætó er heldur betur í stuði á 20 ára afmæli sínu hvar þeir bjóða nú aftur í júlímánuði upp á spennandi tilboð fyrir fjölskylduna. Maður lifandi!

Börn, sem eru 17 ára og yngri & í fylgd með forsjáraðila, fá frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu í júlí. Takk fyrir túkall!

Hinn fullorðni skal framvísa gildu fargjaldi, eins & strætókorti, appi, farmiðum eða pening og börnin sem eru í fylgd þeirra fá að ferðast frítt með.

Strætó - besta leiðin fyrir borgarferð!
May be an image of Texti þar sem stendur
 
 

Byggðasamlag í tugi tvo ...

121568906_3295282270541346_495051676678171631_oVerið með oss í tugi tvo
til að bæta ferðir.
Unaðurinn hann altsvo
endalaust mig serðir. 

Í tilefni af tuttugu ára afmæli byggðasamlagins Strætós bs. hefir dr. Gylforce tekið vagnana - vini vora - grimmt dag þennan til að minnast þessara merku tímamóta. En ekki hvað???

Vitaskuld lá straumurinn í rafvagna byggðasamlagsins kvöld þetta & var ekkert lát á unaðinum í þeim efnum. 

Næstu dagar munu fara í hátíðarhöld af tilefni þessu & því gott fyrir vagnverja - nær & fjær - að fylgjast með vefi þessum.

Amen.


Góðan daginn allan daginn ...

208784037_326497315823930_7137335658039123280_nHinn prúðbúni & fráleitt mikli predikari dr. Gylforce hefir verið sem eilífur augnakarl í leiðum sínum til & frá Stútulautarselinu sem eru jú leiðir 3 & 4.

Að minnsta kosti tvennt hefir vakið gjörhygli Gylforce-ins. Nema hvað.

Í fyrsta lagi eru komin í nokkra vagna skemmtileg handföng sem eru með auglýsingu. Það er nýbreytni.  Þetta hefir doksi kallinn ekki áður séð & verður gaman að sjá hvort þetta verði sett upp í alla vagna. En ekki hvað???

góðan daginnAnnað sem er allra athyglivert eru auðvitað vagnstjórar & -stýrur. Langflest eru þau til fyrirmyndar en þó er grautfúlt að mati dr. Gylforce að hitta á einn slíkan sem ekki býður góðan dag, horfir ekki til manns & lætur eins & vér vagnverjar séum ekki um borð. 

Dr. Gylforce mætti því miður einum slíkum í dag á leið 4. Vonandi hittir hann öngva slíka á morgun hvar fögnuður verður enda nákvæmlega 20 ár liðin frá stofnun Strætós bs. Það er eitthvað!

Af hverju vagnstjóri ertu?
Við aksturinn mjög laginn?
Á skemmtilegheitum skerptu
skjóttu á oss: Góðan daginn!


Straumurinn liggur í vagninn ...

206953175_3980443268691906_2802955615264792026_nBylting hófst fyrir hundrað árum
hvarf þá myrkrið svart.
Lýsislampana út bárum
& leiddum strauminn skarpt.

Á hvíldardegi þessum eru nákvæmlega 100 ár frá því að Rafstöðin í Elliðaárdalnum hóf starfsemi og Reykjavík reið inn í nútímann. Maður lifandi!

206220330_3980443272025239_6676629019412340726_nAf þessu tilefni hefir Strætó bs., í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur & Elliðaárstöð, látið útbúa þennan forláta & flotta rafvagn. 

Rafvagn þessi verður væntanlega á leiðum 2, 3, 4, 6 & 18 næstu vikurnar & er dr. Gylforce afar spenntur að sjá hann á vígvöllum veganna. 


Grímulaust í gulum ...

203209409_558861148465385_4786656131033083697_nNú grímulaus göngum til
gulra stórra vagna.
Varlega ég fara vil
víst er of snemmt að fagna.

Grímulaus gleði

Frá og með morgundeginum verður grímuskylda í vinum vorum - vögnunum - afnumin & allt verður eins & það var áður. Þessu ber að fagna!

Kæru vagnverjar, njótið laugardagsáætlunarinnar án grímunnar en munum samt eptir persónulegum sóttvörnum & tillitssemi um borð í vögnunum.

Amen.


Vagnstjórar horfi fram á veginn ...

1205599Loksins geta þeir kátir keyrt
kúnnana látið í friði.
Röfl í þeim er reyndar fáheyrt
rennur sitt skeið; farmiði.

Farmiðar fara í frí


Stoppin mín ...

1Stokk´- & Stíflusel
stoppin eru mín.
Ég þar daga dvel
fæ dásemdarsýn.

Dr. Gylforce valhoppaði vitaskuld í vagnana þennan heldur kalda en þó fagra hvíldardag.

Eins & vera ber voru rafvagnarnir í aðalhlutverkinu á leiðum doktors, leiðir 3 & 4 - & jafnvel metanið líka. Maður lifandi!

Eitt var þó hvimleitt. Í sumum rafvögnunum er slökkt á upplýsingatöflunni. Doksi kallinn hefir minnst á þetta áður en fátt virðist gerast í þeim efnum. 

Að mati dr.´s verður byggðasamlagið að kippa þessu í liðinn því þónokkrir vagnverjar stóla á þær til að vita hvunær eigi að fara út úr vagninum.

Yfir&út!


Hin heiðbjarta Heiðmörk ...

downloadÍ Heiðmerkurskóginn skreppa vil
skána þá mín geðhvörf.
Öngvar leiðir eru þangað til
úrbóta nú er þörf.

Vagninn í Heiðmörk

download (1)Dr. Gylforce tekur undir með vagnverju þessari hvar gaman væri nú að fá vagnaleið upp í Heiðmörk að sumarlagi.

1097-3178ac0535Hinn nakti raunveruleiki byggðasamlagsins segir doksa kallinum hinsvegar að slík leið sé ekki á teikniborðinu - & líklega ekki í bráð.

Enda þótt hugmyndin sé nýstárleg & góð er varla grundvöllur fyrir henni. Vonandi einhvern tíma síðar enda þyrfti nú ekki nema eina smárútu í verkefnið. 

Yfir&út!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband