Kjölturakkar & kettir ...

628x471Hinn rándýri & rófulausi dr. Gylforce rak nokk í rogastans hvar hann sá frétt á netinu um að leyfa gæludýr  meðal vinanna, vagnanna.

Dr. Gylforce er gæludýravinur hinn mesti & kann ferfætlingunum allt hið besta. Doksi kallinn hefir & átt urmul katta af ýmsu stærðum & tegundum. Hinsvegar hefir hann aldreigi hapt ímyndunarflug þess efnis að fara með þá í vagnana. Hvað um það.

Í fréttinni kemur aukinheldur fram að gæludýr séu leyfð víða í borgum Evrópu, t.a.m. London. Dr.-inn hefir nú heimsótt Lundúni æði opt eins & gamla bloggsíða hans sýnir, sem & borgir eins Berlín, Barcelona, París & Kaupmannahöfn. Doksi minnist þess ekki að hafa séð neina ferfætlinga þar á ferð með vögnunum, nema þá helst ofurölvaðar mannverur á fjórum fótum. Hvað um það.

cat-Artful-Dodger_2085377bHinsvegar mátti sjá kjölturakka & jafnvel einstaka ketti meðal Krít- & Kosverja suður í Miðjarðarhafi. Öngvin ófriður var af þeim þar & því er þetta virkilega áhugaverð spurning hvort leyfa á gæludýr í glæsivögnum eður ei???

Blindir mega hafa rakkann með sér í vagnana hér á landi á þótt dr.-inn hafi aldrei séð slíkt.

Dr. Gylforce vonar að byggðasamlagið stígi varlega til jarðar hvað gæludýrin varðar enda mörg önnur verkefni sem eru brýnni á sviði almenningssamgangna en fiðurmjúkir ferfætlingar.

Í glæsivagna gæludýr
gelta ótt & breima.
Kettir, hundar, ær & kýr
kúriði bara heima!

P.s. Þetta málefni virðist vera einum blaðamanni visir.is mjög hugleikið sbr. http://www.visir.is/gaeludyrin-med-i-straeto/article/2015150229148


Grennslast & grundað ...

20140831122302-81aef655Hinn gaumgæfi & vel grúskandi dr. Gylforce geisaði geysi glaður út á biðstöð sína við Stútulautina hvar hann var spenntur að sjá hvaða vagn bæði verktakinn vestur á Kársnesi hapði upp á að bjóða sem & byggðasamlagið með aukavagninn á leið 35. Nema hvað.

Hinn sænskættaði 308 Volvo tók hringinn á leið 35 fyrir hönd verktakans meðan hinn 129. Citelisvagn var fulltrúi Strætó bs. Það var og.

Sá sænski kom á slaginu kl. 7:41 við lautina fögru & var þéttsetinn af vinum vorum, vagnverjum. Flestir þeirra voru á leið út við Biðskýlið en svo tíndist inn einn & einn við hverja biðstöð. Margir verjarnir stigu út við Sæbólsbraut & röltu smáspöl í skýlið við Skeljabrekku & fóru þar áfram með leið 4 niður í bæ. Það er vel til fundið.

20120612031527-115e5b43Eystur í Engihjalla fór doksi kallinn á fjörurnar við 129 Citelisvagninn. Hann var fjórum mínútum of seinn & mun fámennari en sá sænskættaði. Dr.-inn hjó eptir því að vagnstjórinn skipti ekki við vagnstjórann á leið 4 við Hamraborg heldur tók annan hring. Hvað um það.

20140831122225-10d827a3_1251238Hinn engilsaxneski & funheiti 305 MAN vagn hefir fengið langt frí frá vígvöllum veganna að því er virðist. Enda þótt doksi hafi gaman af þeim vagni hefir hann tekið eptir því að hann er orðinn slitinn, lúinn & snjáður. Vonandi er sá funheiti í góðri yfirhalningu hjá verktakanum vestur á Kársnesi & kemur svá aptur fílefldur til leiks von bráðar.

Amen.

Þó ég leit´& leiti
látlaust honum að
fór sá funheiti
í frí - nema hvað.

Myndir: citybus.piwigo.com


Glænýr fyrir Gylforce ...

10893661_10152591745242215_2056091830_n

Hinn áberandi & ábatasami dr. Gylforce óð hreinlega á súðum í gær hvar hann komst í tæri við afar marga munúðarfulla & glæsta vagna. Nema hvað.

Dr.-inn kom upp rampinn við Hamraborg á leið í Voginn með leið 4. Þar sat hann meðal um 20 vagnverja & hoppaði doksi kallinn svo í einn sænskættaðan 308 Volvovagn á leið 35. Allt svo sem venju samkvæmt.

Það var þó eitt sem vachti gjörhygli Gylforceins. Við hið fagra Hálsatorg vafraði hinn glænýi & glæsti 182 Crossway vagn & var merktur "er ekki á leið". Dr.-inn áttaði sig ekki á því hvað vagnstjórinn var að rúnta um & vissi vart hvar hann átti að vera á vagninum. Hvað um það.

Leið 35 lagði svo úr vör & rann þá upp hið skæra ljós fyrir hinum aldna vagnverja. Hinn glæsti var aukavagninn á leið 35 - MAÐUR LIFANDI. Þennan vagn varð dr.-inn að prófa - & það hið snarasta!

Dr.-inn fór út úr hinum sænskættaða við lautina sína & beið glaður í bragði í um fimmtán mínútur. Þá kom hann eins & sjá má á myndskeiðinu. 

Enda þótt dr.-inn skilji ekki alveg hvers vegna glænýr & glæstur vagn aki sem aukavagn í stað þess að vera fullnýttur, var þetta dásemdar hringur um Voginn í þessum þýða & góða vagni.

Dr.-inn varð mjúkur & meyr
mætti vagninn á stæði.
Hundrað áttatíu & tveir
tjúttaði hringinn - æði!


Gjöfular lendur Grafhyltinga ...

20120612031500-18d67f07Hinn blendni & brögðótti dr. Gylforce brá sér í urmul ferða hvar vetrafrí stendur nú sem hæst hjá vagnverjanum. Nema hvað.

Dr.-inn hugðist kynnast gestrisni Grímsnesinga á sunnudaginn en veður hamlaði öllum eðalferðum & því fátt um fína drætti hvað blágulu vagnana varðar. Hvað um það.

Dr. Gylforce stóð kátur & keikur við Hlemmtorgið í hádeginu & hugðist leita fanga í einum sænskættuðum. Það var eigi hlaupið að því. Irisbus & Iveco Crossway vagnarnir hafa algerlega yfirtekið sviðið. Ef þeirra naut ekki við, bauð byggðasamlagið, Strætó bs., upp á Irisbus Citelis & Irisbus Karosa vagna.

Það var aðeins hægt að finna einn & einn Scania Omnilink á stangli, aðallega á leið 1 & því ekkert annað en að stíga í vænginn við leið leiðanna. 

Í sænskættaðan ætíð sest
& sit þar lengi inni.
Það mér þykir allrabest
í þýðri veröld minni.

Eptir ferð suður í Fjörð & tilbaka með 104 Omnilinknum á leið 1 var komið að því að kynnast gjöfulum lendum Grafhyltinga. Dr.-inn hefir sjaldan verið á þeim slóðum & því löngu tímabært að einhenda sér inn í leið 18. En ekki hvað???

20140831123450-f1bcdeb6Dr.-inn vonaði að einn fjögurra vagna á leið 18 væri sænskættaður en svo virtist ekki vera, því miður. Doksi kallinn tyllti sér því tignarlega inn í 121 Citelisvagn á leið 18 & þaut með honum að Þúsaldarvegi þeirra Grafhyltinga.

Dr. Gylforce freistaði þess að ná leið 26 eptir að hafa skrafað & skeggrætt við Grafhyltinga. Eitthvað malaði doksi kallinn of mikið við innfædda vagnverja þarna því hann rétt sá á eptir leið 26. Voru nú góð ráð rándýr eins & þar stendur því hin 26. leið hefir aðeins klukkutímatíðni.

Dr. Gylforce gekk & ráfaði um holtir & hæðir Grafhyltinga hvar hann loksins sá til 143 Crossway vagnsins á leið 18. Fór dr.-inn með honum alla leið að Hlemmtorgi & verður leið 26 að bíða betri tíma.

Meira síðar mínir virðulegu vagnverjar.


Myndir: citybus.piwigo.com/


Gestrisni Grímsnesinga ...

straeto120512gk_369288643Hinn hjassalegi & holdmikli dr. Gylforce hefir í hyggju að kanna vagna, vagnverja & rausnaskap Grímsnesinga næstu daga.

Vagnar höfuðborgarsvæðisins - farið varlega á holóttum vígvöllum veganna um helgina.

Mynd: sunnlenska.is


Að meta metan - glens í Bens ...

222Hinn snáfandi & vel snæddi dr. Gylforce hefir verið alsæll í allan dag hvar það hljóp heldur betur á snærið hjá honum. Maður lifandi. Hann hugði á vagnaferðir í eptirmiðdaginn & fékk tvo eðalvagna sem vert er að minnast á. En ekki hvað???

223Fyrstu tvær ferðir doksa voru hepðbundnar. Þegar dr.-inn spókaði sig & spigsporaði um Mjódd þeirra Breiðhyltinga kom hinn glæsti MB 223 vagn á leið 11. Hann var heldur seinn enda að koma úr höfuðstöðvunum suður í Firði.

Dr.-inn hratt sér inn í þýska eðalstálið & hélt með honum um Bústaðaveg & alla leið að RÚV við Efstaleiti. Þar freistaði doksi að ná í annaðhvort leið 2 eða 13 en var óheppinn & rétt missti af þeim báðum.



Góðu heilli eru báðar leiðir með 15 mínútna tíðni & eptir drykklanga stund kom hinn sænskættaði metan 118 vagn á leið 13. Doksi beið öngvra boða - búinn að læra meta met´ann. Dr.-inn sveif með metanvagninum að Hlemmtorgi hvar hann fór í einn glænýjan & glæstan Crossway 179 vagn á leið 4.

3.8._133_167Doktorinn i gríni & glens
í glás fer af vögnum.
Gylforce-inn í glæstum Bens
gleði - nú vér fögnum!


 


Sá sænski ...

20120612032941-646dc994-meHinn vel svínaði en fráleitt svívirti dr. Gylforce fór vitaskuld í Svíann í gær hvar hann hapði rúm til að einhendast í einn góðan hring um Voginn. Nema hvað.

5703_10201408879248673_1175441320_nDr.-inn hóaði í 301 Volvovagninn á leið 35 hér við mennta- & menningarsetrið við Kársnes & Kastala & var meðal um 15 vagnverja.


volvo gamallEnda þótt hinn funheiti MAN 305 vagn sé skemmtilegur á margan hátt er ljóst að hann ræður illa við að vera á þremur vöktum frá morgni til kvölds. Hann er til að mynda hvergi sjáanlegur á vígvöllum veganna í dag & hefir ekki verið undanfarna daga á leið 35.

Annars eru alltof fáir Volvovagnar sjáanlegir í hinu lostfagra leiðakerfi. Áður en hinir glænýju & glæstu Crossway vagnar komu til sögunnar voru 3ja hásinga Volvovagnar á leiðum 1 & 6, þ.e. 192-198 vagnarnir. Núna sér maður þá varla, helst í einni & einni aukaferð. 

191Þá voru 188-191 Volvoarnir einnig á leiðum 1 & 6 en þeir hafa verið undanfarið í mýflugumynd. Einn af þeim tekur reyndar slaginn á leið 15 á annatíma. Kannske aka þeir leiðir sem dr.-inn hefir lítt kannað - hvur veit?

195Verktakinn suður í Firði er með öngva Volvovagna svo segja má að hinn verktakinn vestur á Kársnesi haldi uppi heiðri sænska stálsins með 301-303, 306, 308-311 vögnunum á leiðum 28 & 35. Merkilegt nokk.

Vagninn hapði vinninginn
- virðulegur Svíi.
Á ferðum sínum foringinn
- feykir upp reykskýi. 

301

 


Myndir: citybus.piwigo.com og fleiri.


Þrí-núll-einn ellegar einn-fimm-sex ...???

156Út í vagna ég ætla nú
á því má ei koksa.
Byggðasamlag - hvað býður þú
fyrir bljúgan doksa?

Hinn duftkenndi & drottnandi dr. Gylforce heldur senn á vit vagna hvar hann þó kemst ekki langt að þessu sinni sökum anna.

Doksi kallinn hefir hoggið eptir því að byggðasamlagið hefir hent hinum stutta 156 Heuliezvagni á hinn kópvægska vígvöll að þessu sinni. 

Þá er annaðhvort að einhendast inn í þann stutta ellegar skella sér í sænskættaða stálið frá verktakanum vestur á Kársnesi en hann hefir nú - líkt & í gær - til taks 301 Volvovagninn.

Humm, humm???

301




Myndir: citybus.piwigo.com


Mjódd & Miðbær ...

CAM01398Hinn háðski en þó fráleitt hatrammi dr. Gylforce hélt á vit vagna í dag hvar hann hjó eptir því að leið 35 - hringurinn um Voginn - var sænsk í stýr´& stál.

Já, mínir virðulegu vagnverjar. Byggðasamlagið Strætó var í stuði & bauð upp á hinn sænskættaða 117 Omnilink sem seinni vagn en hinn fyrri var frá verktakanum vestur á Kársnesi, 301 Volvo-vagninn. Sumsé, tvöföld sænsk gleði fyrir oss vesturbæjarvagnverjana.

Dr.-inn hélt hnarreistur til vagna sinna er hann uppgötvaði þetta & átti þrásetu í 117 Omnilinknum sem segir sex! Vagnstjórinn var með á nótunum & hélt vel áætlun í þæfingnum & vagnverjar voru nokk fjölmennir í ferð þessari.

CAM01395Dr.-inn hélt með 169 Karosavagninum á leið 4 yfir í Mjódd frá Engihjallanum. Þar hugði doksi kallinn á ferðir með hinum glæstu & glænýju Crossway vögnum. Eitthvað fór Stútlautarhertoginn út af sporinu meðal Breiðhyltinga hvar hann óvænt sté inn í 213 Crossway vagninn á leið 12 áleiðis á Hlemminn.

Dr. Gylforce stóðst svá ekki mátið er hann sá hinn glæsta 179 Crossway vagn á leið 4 & hélt með honum frá Hlemmi, í gegnum Miðbæinn við Háuleitisbraut & upp í Hamraborg okkar Kópvæginga.

Í vagnana varfærinn
víst er það fjör!
Hlemmur, Mjódd & Miðbærinn
með mikinn sjarmör!


Vellíðan vagnverjans ...

20140831121757-ff0409cfHinn affarasæli & auðnusami dr. Gylforce komst fyrir skemmstu í álnirnar sjúku líkt & Stífur Hilmars söng svo fagurliga um fyrir langa löngu. Hvað um það.

Dýrðin & dásemdin hófst í Mjódd þeirra Breiðhyltinga hvar doksi kallinn komst í kynni við einn kostfagran blágulan eðal vagn frá þeim Fjarðarmönnum. 

Nefnilega leið 51 mínir virðulegu vagnverjar!

Dr. Gylforce var í för með um 20 vagnverjum sem héldu frá Mjóddinni að Hveragerði & Selforce með afar vökum & vinalegum 409 vagninum. Vagnstjórinn var hinn kurteisasti & leiðbeinti vagnverjum sem inn komu.

Dr. Gylforce var á leið á Selforce hvar hann ætlaði að skipta um einn blágulan & halda áfram för sinni að Borg í Grímsnesi. Maður lifandi. Hvílíkt ævintýri! Hvílík upplifun!

Við Selforce áði vagninn við N1 sjoppuna. Þar beið annar blágulur vagn eptir dr.-num. Númer 72. Dr. Gylforce valhoppaði & tók bangsahlaup inn hann en hjó eptir því að öngvir voru vagnverjarnir. & það í allri ferðinni!

Dr.-in fékk sumsé sérferð frá Selforce að Borg í Grímsnesi sem var vitaskuld ágætt þótt doksi hepði nú hapt gaman af að ræða við aðra vagnverja á leiðinni. Hvað um það.

Við Borg sté dr.-inn út úr þessari munúðarfullu ferð & getur hann vart beðið eptir næstu vagnaferðum með þeim blágulu.

Með Maxið & bús & bland
bláguli vagninn spes.
Stökk um allt Suðurland
staðar nem - Grímsnes!

Mynd: citybus.piwigo.com


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband