Færsluflokkur: Bloggar
Doksi vappaði um Vöðin
vesæl líkt& Kórea.
Meðan var rosaleg röðin
rétt hjá Ikea.
Hinn fráleitt gljálausi & gufulegi dr. Gylforce gerði sér góðan dag, hvar hann rannsakaði dekk & drif leiðar 5 í gær. Maður lifandi. Langt var um liðið síðan doksi kallinn fór síðast á fjörurnar við leið þessa. Nema hvað.
Dr. Gylforce kastaði tólfunum frá Mjódd okkar Breiðhyltinga. Hann endaði unaðsrúnt með leið 12 við Hlemmtorgið & einhenti sér inn í leið 5 áleiðis að Norðlingaholti.
Norðlingaholt er hluti af Árbænum; hringlaga hverfi sem í fljótu bragði virðist vel heppnað. Leið 5 er eina leiðin sem gengur um hverfið & býður byggðasamlagið Strætó þar upp á 6 vagna með korterstíðni á annatíma. Ekki slæmt.
Leið 16 ekur aukinheldur um Árbæinn en fer að Moggahöllinni við Hádegismóa en ekki lengra í eysturátt. Hvað um það.Doksi kallinn sté út úr leið 5 við Olís Norðlingaholti, spásseraði um hverfið & hapði hug á að kynnast norðlingzkum vagnverjum. Ekki var feitan gölt að flá í þeim efnum & hverfið raunar allt heldur doðrað & dofið. Var þá lítið annað að gjöra en að hóa á nýjan leik í fimmuna & halda brott úr hverfi þessu.
Mesta ánægjuefnið við kynni doksa af Norðlingaholti, var þegar sænskættaður Scania vagn kom á leið 5. Hipp-hipp-húrrey!
Doksi kallinn gekk hnarreistur til inngöngu í 107 Omnilink vagninn, hlammaði sér í rauðklæddu sætin & hlakkaði til að hverfa úr hverfi þessu.
Aaaaaa - minn sænskættaði vagn - hér er sko gott að vera!
Bloggar | 25.5.2017 | 14:58 (breytt kl. 16:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Doksi bísperrtur í blágulum
í Borgarnesi áði.
Stoltur í ferðum ei stopulum
strax tilbaka hann þráði.
Hinn derringslegi & drambláti dr. Gylforce dró seiminn & var dragmáll mjög þrátt fyrir að komast í unaðsrúnt meðal vina vorra - vagnanna. & var sá rúntur ekki af verri endanum - maður lifandi!
Dr. Gylforce gerði sér far með einum blágulum frá Mjódd okkar Breiðhyltinga að Borgarbyggðinni.Í sumar mun byggðasamlagið bjóða upp á sjö ferðir virka daga frá Borgarnesi að höfuðborginni; tvær á morgnana & fimm síðdegis- & kvöldferðir.
Það verður unaður að notast við vagna þessa þegar sól er hæst á lopti.
Yfir&út!
Bloggar | 24.5.2017 | 09:59 (breytt kl. 10:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Léttar lestir & vagninn snar
líða brátt um engi.
Virtir menn gjörast vagnverjar
vonandi tór´ég svo lengi!
Hinn ókomni & óorðni dr. Gylforce var agndofa, hvar loksins hefir einhver á vegum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu kynnt Borgarlínuna með myndarlegum hætti.
Samgöngustjóri Reykjavíkurborgar reið á vaðið & hélt gott erindi hjá stjórnmálaflokki einum á dögunum & má segja eptir kynninguna að höfuðborgarsvæðið eigi sér nú viðreisnar von.Í máli samgöngustjórans kom m.a. fram að ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða á næstum árum eða áratugum, stefnir í mikið óefni í samgöngumálum. Fjárfesta þarf gríðarlega í t.d. nýjum vegum, mislægum gatnamótum, endurnýjum bifreiðaflotans, bílastæðum o.fl. Áætlaður kostnaður við öll herlegheitin virðist liggja nærri því að koma á fót léttlestar- & hraðvagnakerfi. Þá eru óátalin umhverfismálin. Maður lifandi.
Þessi óheyrilegi kostnaður kallar á að hugsa almenningssamgöngur upp á nýtt. Það virðast sveitarfélögin hafa gert & koma til með á næstu misserum að kynna fyrir okkur léttlestar- & hraðvagnakerfi á höfuðborgarsvæðinu, hvorki meira né minna.
Áætlað er að íbúum komi til með að fjölga um 70 þúsund manns á næstu 25 árum. Það er meiri íbúafjöldi en í Kópavogi & Hafnarfirði samanlagt!! Nema hvað.Borgarlínan er metnaðarfullt verkefni á vegum allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Það þarfnast mjög góðrar kynningar því hér er um almannafé að ræða & gríðarlega háar tölur í því sambandi. Gleymum þvi ekki.
Yfir&út!
Róttækar aðgerðir í almenningssamgöngum
Bloggar | 18.5.2017 | 16:51 (breytt kl. 17:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Volgar laugar, voldugur hver
vafrar doksi um pleisið.
Í þann blágula fjótt svo fer
finnst þetta ekki beysið.
Hinn mallandi & moðkenndi dr. Gylforce mjakaði sér í einn af blágulu vögnum landsbyggðarinnar, hvar hann loksins loksins fékk réttu litablönduna en ekki einhvern hvítan rútuskratta. Hipp-hipp-húrrey!!! Maður lifandi!Dr. Gylforce fór með ungviðið úr mennta- & menningarsetrinu við Kársnes & kynnti fyrir því bæ einn fyrir austan fjall. Doksi kallinn hringsólaði með ungana í leið 35 áleiðis upp í Hamraborg & bað þess heitt að leið 36 verði endurvakin.
Frá Hamraborg þeirra Kópvæginga hélt hópurinn með leið 4 að Mjódd okkar Breiðhyltinga. Þegar í Þönglabakkann var komið blasti blágula djásnin við doktornum. Mmmmmm.
Dr. Gylforce brunaði með honum að Hveragerði & fékk svá sama vagn til baka.
Unaður.
Bloggar | 16.5.2017 | 21:32 (breytt kl. 22:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Glæstir eru á götum
í gulum fínum fötum.
Sterk eru drif & dekk
& doksi með - tjékk!
Vagninn ávallt veit
um vagnverjadeit.
Hinn mikli velunnari vagnanna, dr. Gylforce, hefir farið mikinn á vígvöllum veganna með vinum vorum, vögnunum - en ekki hvað???
Dr. Gylforce kom eitthvert kveldið ofanaf með leið 4 niðurúr & ætlaði innúr en alls ekki að æða framfrá. Það vakti gjörhygli Gylforce-ins að báðar leiðirnar sem hann hugðist taka voru ómerktar á endastöð. Er það eðlilegt???
Dr.-inn beið eptir leið 11 í Mjóddinni & fékk nýjasta vagn þeirra Fjarðarmanna, eðal Iveco Crossway sem bar öngva merkingu fyrr en vagnstjóri kom, ræsti vagninn & ók af stað. Af hverju er ekki hægt að hafa vagninn með leiðanúmeri framan á svo vér vagnverjar sjáum betur hvar hann er? Stundum er það svo, stundum ekki. Hví þetta ósamræmi???Það var sama upp á teningnum við Hlemminn. Þar var leið 4 ómerkt eins & myndin sýnir. Rúnturinn var hinsvegar unaðslegur, hvar doksi kallinn skipti svo snarlega um vagn í Þönglabakkanum & hélt með leið 3 að Stútulautarseli sínu.
Bloggar | 13.5.2017 | 23:41 (breytt 14.5.2017 kl. 12:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Doktor Gylforce tvistinn tók
tjúttaði á hans vit.
Úr Sölum yfir í Sel er djók
sömu nánast hnit.
Hinn dáðlausi & dæsni dr. Gylforce drattaðist á vit vagna í strekkingi gærdagsins, hvar hann komst í tæri við hina geðþekku & stuttu leið 2. Maður lifandi.
Dr. Gylforce sté inn í hina aðra leið við Hlemmtorg okkar Reykvíkinga. Doksi kallinn fýsti að vita hve lengi hann yrði frá efri byggðum Kópavogs yfir í Seljahverfið, þ.e.a.s. með því að ganga úr Salahverfinu yfir í Selin sælu.Í upphafi ferðarinnar vorum vér vagnverjar fáir; óðara fjölgaði í Irisbusvagninum hvar hann var orðinn smekkfullur á leið upp í Hamraborgina háu & fögru. Dr.-inn hélt för áfram enda á leið í 201 að þessu sinni.
Dr. Gylforce þrýsti þéttingsfast, en þó fimlega - & umfram allt tímanlega - á stanzrofann í leið 2 rétt áður vagninn áði við Ársali. Við tók 7-8 mínútna labb yfir í fegursta Stútulautarselið hér á landi á - & þótt víðar væri leitað.
Yndislegt.
Yfir&út!
Bloggar | 11.5.2017 | 15:06 (breytt kl. 15:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Borgarlínan á baukinn fær
bruðl verður hver metri.
"Stjórnvöld eru orðin ær"
er endurtekið af Pétri.
Hinn létti & lesni dr. Gylforce hefir fylgst vel með umræðunni um léttlesta- eða hraðvagnakerfi höfuðborgarsvæðisins er fengið hefir nafnið Borgarlína.
Að öllum likindum er hraðvagnakerfi ódýrari kostur. Það þýðir að liðvagnar - jafnvel með tvo liði - aka um á sérmerktum akreinum & leysi strætisvagnaleiðir 1 & 6 af hólmi eða því sem næst. Hér er um mjög viðamikið verkefni að ræða & kostnað upp á fleiri tugi milljarða, hvorki meira né minna. Hvað um það.Ljósvakamiðill einn hér í borg hefir mjög athyglisverðan símatíma á morgnana; línan er laus er þátturinn nefndur en ætla mætti að skrúfan sé ansi opt laus þar líka, maður lifandi. Flestir sem hringja inn finna þessari Borgarlínu allt til foráttu en tala aukinheldur um hve illa hún hefir verið kynnt almenningi.
Er ekki nær að bíða eptir kynningu á Borgarlínunni áður en hlustendur gefa henni á baukinn? Doksi kallinn hepði nær haldið það.
Bloggar | 9.5.2017 | 17:22 (breytt 26.5.2017 kl. 16:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þeir ganga fyrir, glæsilegir
á glænýjum akreinum.
Sírennandi, fljótir, seigir
& sjaldan i leynum.
Hinn haldgóði & hetjulegi dr. Gylforce hefir fagnað hróðuglega, hvar i dag hófust framkvæmdir við landræmu vagnanna til handa; milli Lönguhlíðar & Rauðarárstígs. Maður lifandi!
Í bígerð er að gera tvær rauðar reinar & mun hin verða við Rauðagerði. Ekki er vanþörf á því heldur mikil vagnþörf, hvar umferðarteppa er mikil á annatímum á þessum slóðum.
Þetta mun efalítið flýta för vagnanna & hjálpa þeim að halda tímaáætlun sem gengur ansi illa á háannatíma nú um stundir.
Góðar stundir.
Nýjar strætóreinar
Bloggar | 8.5.2017 | 16:22 (breytt 26.5.2017 kl. 16:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Borgarlína, léttlestir,
leiðanna blóðrás.
Vagnverjar velflestir
vilja samgönguás.
Hinn framsýni & fráleitt freki dr. Gylforce fékk mikið vatn í munninn þrátt fyrir að vera hvorki að teiga Toppinn né Maxið þegar hann sá frétt um fyrirhugaða Borgarlínu á mbl.is. Maður lifandi.
Ef áætlanir ganga eptir hepst undirbúningur að Borgarlínunni, léttlestar- ellegar hraðvagnakerfi, á næsta ári. Kostnaðurinn við verkefnið er vitaskuld gríðarlega mikill & spurning hvernig fjármögnun verði háttað.
Hvernig sem peningamálunum líður þá mun Borgarlínan auka lífsgæði höfuðborgarbúa verulega. Fyrsta áfanga hennar á að ljúka eftir fimm ár & verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu.
Doksi kallinn getur vart beðið.
Borgarlínan
Mynd: mbl.is
Bloggar | 5.5.2017 | 09:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ráfaði ég í rútu hvíta
rétt við Borgarbyggð.
Áður náði ég að skíta
aum ferð & viðurstyggð!
Hinn vagntrúaði & vel virti dr. Gylforce var í dag líkt & ungur vagnverji á Strætóminjasafni; ærslafullur en þó einbeittur, hvar hann gat vart beðið eptir því að komast í blágulan vagn á leið 57. Maður lifandi.
Hinn virðulegi vagnverji ól manninn meðal Dalamanna i vikunni en náði ekki að taka leið 59 að þessu sinni - er ekur frá Hólmavík, í gegnum Búðardal & að Borgarnesi - enda um stopular ferðir að ræða á þeirri leið. Hvað um það.Við Borgarbyggð var spennan nánast orðin óbærileg hvar birtist þá allt í einu hvítur rútuskratti á leið 57!!! Dr.-inn hapði ekki tök á því að bíða eptir næsta vagni & varð að gera sér þann hvíta að góðu frá Borgarnesi að Mjódd, í gegnum Akranes.
Í þeim hvíta var öngvin upplýsingatafla & vart heyrðist í hinni íðilfögru rödd Herdísar Grýlu, hvar hún á að segja oss hvaða stoppistöð er næst. Hneisa!
Sumsé, ferðin varð algjört flopp & dr. Gylforce algjörlega sturlaður líkt & ein myndin ber glögglega með sér. Það var sorglegt að komast ekki í blágula vagninn loksins þegar tækifæri gafst til. Góðu heilli rakst doksi kallinn á bláan innanbæjarvagn upp á Skipaskaga & hyggst gera honum betur skil í sumar.
Yfir&út!
Efsta mynd: hopbilar.is
Neðsta mynd: akranes.is
Bloggar | 3.5.2017 | 22:52 (breytt kl. 23:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.8.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 124051
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar