Færsluflokkur: Umhverfismál
Um Hverfisgötu keyra
kætir doktorinn.
Mun ég nú fara meira
niðrí miðbæinn.Hinn bísperrti & fráleitt brjálsami dr. Gylforce beið öngvra boða hvíldardag þennan, hvar hann brá sér rakleitt í vagn niður Hverfisgötuna. En ekki hvað???
Upp og niður Hverfisgötu á ný
Gylforce-inn tók tólfuna að þessu sinni en frá & með deginum í dag munu leiðir 1, 6, 11, 12, 13 & 14 aka um Hverfisgötu í stað Sæbrautar.
Þessu ber að fagna. Nú verður mun skemmtilegra að fara í miðbæinn, sérstaklega í desember & upplifa stemmninguna.Vögnunum virtist ganga vel að aka um nýuppgerða götuna sem er vel því opt & tíðum reyndist hún þröng hér áður fyrr.
Dr. Gylforce hlakkar til næstu ferða um þessa einu af höfuðgötum miðbæjarins & vonandi velur doksi kallinn aðrar leiðir en þá tólftu.
Yfir&út!
Umhverfismál | 8.12.2019 | 20:43 (breytt kl. 20:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Held ég senn á vagnavit
verjanna á meðal.
Þægilega í þristi sit
þetta verður eðal!Með fjarkanum glaður fer
um Fell í Breiðholti.
Farþeginn þar fjölmargt sér
er fyllir hann stolti.
Hinn bænheyrði & blessaði dr. Gylforce brá sér lox af bæ, hvar hann hitti fyrir leiðir 3 & 4. Nema hvað.Eptir að hafa setið vel að sumbli, aftaninn verarlanga, var komið að því að halda á vit vagna - en ekki hvað???
Það gladdi hið gamla hró dr. Gylforce hvar raðnúmerin 176, 177 & 178 voru á vachtinni á leið 3 þetta svala en þó fagra laugardagskvöld.
Rafvagnar sáust aðeins á leið 4 hvar dr. Gylforce náði þeim ekki - illu heilli. Aðeins náði hann í skottið á 174 Iveco Crossway vagni. Hvað um það.
Á morgun, sunnudaginn 8. desmeber, hefja vinir vorir - vagnarnir - aptur ferðir niður Hverfisgötuna sem er mikið fagnaðarefni. Dr.-inn verður efalítið með í för á einhverjum leiðum. En ekki hvað???
Hipp-hipp-húrrey!!!
Umhverfismál | 7.12.2019 | 22:45 (breytt kl. 22:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þrásinnis ég vonandi verð
í vögnunum glaður.
Nú Hverfisgata er nýuppgerð
- nautnalegur staður!Oflátungurinn & ofvitinn dr. Gylforce er yfir sig hrifinn, hvar loksins hillir undir að vinir vorir - vagnarnir - aki um Hverfisgötuna á nýjan leik.
Samkvæmt yfirlýsingu frá Strætó hefja sex leiðir akstur um eina að höfuðgötum borgarinnar 8. desember nk. Það er vel.
Hverfi skatan á ný
Leiðir 1, 6, 11, 12, 13 & 14 koma til með að keyra upp & niður Hverfisgötu. Sums staðar er gatan þröng & því mikilvægt að fara varlega þegar vagnarnir mætast. Nema hvað.
Leið 3 - leið doktorsins - heldur áfram að aka Sæbrautina enda nauðsynlegt að einhver strætisvagnaleið stoppi sem næst hinni fögru Hörpu.
Amen.
Umhverfismál | 30.11.2019 | 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tíu nýir rafvagnarStjórn byggðasamlagsins hefir greinilega gert upp hug sinn varðandi hvurnig vagna eigi að fjárfesta í á næsta ári. Það munu rafvagnar vera. Gleðilegt. Maður
lifandi.
Til landsins koma þeir tíu
tilhlökkun er mér hjá.
Nautn að þeir séu ei níu
njóta mun þeirra - ójá!
Stjórnin hefir rúmlega 500 milljónir úr að moða & með skattívilnunum & niðurfellingu á ýmsum gjöldum stefnir í að þeir fjármunir dugi til þess að kaupa tíu rafvagna. Jibbíkóla!Dr. Gylforce vonar að reynslu rafvagninn, hinn glæsti Mercedes Benz vagn, sem er hér um þessar mundir, komi vel út & sé líklegur á vígvelli veganna á hinu herrans ári 2020. Hvur veit???
Líklegra er þó að haldið verði áfram að fjárfesta í vögnunum úr Austri enda væntanlega hagkvæmara að vera með færri tegundir en fleiri í notkun í einu hvað viðhald & varahluti varðar.
Jæja - yfir&út!
Umhverfismál | 29.11.2019 | 16:19 (breytt kl. 16:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stórgott er strætó að brúka
í stuttu ferðirnar.
Oddeyringar eru að kúka
alveg í buxurnar.
Eymd OddeyringaÞeir láta ekki að sér hæða nyrðra hvar nú berast oss þær fréttir að um 700 bifreiðar séu á hverja 1000 íbúa í höfuðstað Norðlendinga. Takk fyrir túkall!
Það sætir nokkurrar undran að hafa urmul sjálfrennireiða þarna hvar gjaldfrjálst er í vini vora - vagnana - aukinheldur sem nokkuð stutt er í allar áttir. Nema hvað.Vissulega er ekki fýsilegt að taka fram reiðfákinn yfir veturinn nyrðra en það ætti nú ekki að vera tiltökumál að ganga á milli staða eða skella sér í ókeypis unaðinn, vagnana.
Ætli það þurfi ekki einn SAS-ara (sérfræðing að sunnan) til þess að kíkja í heimsókn & reka ruglið burt & vanafestu Norðlendinga???
Þarf dr.-inn ekki bara að fara í enn einn leiðangurinn til Oddeyringa & sýna þeim hvílíkur unaður vagnarnir eru??? Hann hepði nær haldið það.
Yfir&út!
Umhverfismál | 28.11.2019 | 15:28 (breytt kl. 16:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á vagninum varð tjón
verjarnir fundu til.
Sorgleg & ófögur sjón
sjá aptur ei ég vil.
Strætó á staurÞað bárust óvenju margar fréttir af vögnum & vagnamálum í gær, hvar sú sorglegasta var efalítið þessi sem átti sér stað við Gullinbrú.
Einn af vögnunum á leið 24 lenti í árekstri við gámaflutningabíl. Á annan tug vagnverja var í vagninum & þurftu tveir þeirra á aðhlynningu að halda.Vagninn virðist talsvert skemmdur en hann er í eigu Kynnisferða sem annast akstur á leið 24. Aukinheldur sést hann optsinnis í Voginum fagra á leiðum 35 & 36 en verður nú í fríi frá vígvöllum veganna um hríð.
Myndir: visir.is
Umhverfismál | 28.11.2019 | 08:57 (breytt kl. 09:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skrýtið í Skerjafirði
skerpa þarf verklag.
Vagnstjórinn allt vanvirðir
verður að kunna sitt fag.
Skelfing og hrollvekjaEnda þótt það sé afskaplega notalegt & indælt að koma inn í heitan strætisvagn á köldum vetrardegi, er það nú full mikið i lagt að vagnstjórar hafi vagnana í lausagangi meðan þeir (vagnstjórarnir) fá pásu sína.
Slíkt virðist vera raunin út í Skeljanesi við Skerjafjörð í myndbrotinu sem fylgir hér með. Hér er um endastöð að ræða hjá leið 12 & hlýtur það að vera í verklagi frá Strætó bs. að drepa skuli á vélinni meðan á tímajöfnunni stendur.
Koma svo kæru vagnstjórar - rífum okkur upp & hugum að umhverfinu.
(myndband http://eirikurjonsson.is/mannlaus-straeto-i-gangi-hrollvekja/, slóð sótt 26. nóvember)
Umhverfismál | 27.11.2019 | 14:33 (breytt 28.11.2019 kl. 08:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á degi gráum dröttumst ekki
drossíunum gefum frí.
Vagninn góði & geðþekki
gleður okkur æ & sí.
Dr. Gylforce hefir tekið eptir því að loptgæði í höfuðborginni teljast aðeins miðlungs samkvæmt mælingum Umhverfisstofnunar. Sjá t.d. LoptgæðiÁ kyrrum & köldum dögum sem þessum er gráupplagt fyrir höfuðborgarbúa að hvíla einkabílinn & kynnast hinum kynngimögnuðu strætisvögnum borgarinnar.
Á loftmengun eru líkur
að leiðum skulum gá.
Unaðurinn öngvan svíkur
endalaust notum þá.
Lítill hluti þeirra er aukinheldur umhverfisvænn hvar 15 rafvagnar (einn til reynslu) & 2 metanvagnar eru vonandi á vígvöllum veganna þegar þetta er ritað. Nema hvað.
Sjálfur fór dr. Gylforce hvergi dag þennan, hvar krankleiki hefir verið að stríða honum. Vonandi rís doksi kallinn úr rekkju á morgun. Hvað um það.
Yfir&út!
Umhverfismál | 26.11.2019 | 16:14 (breytt kl. 16:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eptir fjórtán ár á ferðinni
mér finnst ég verðskulda
að stinga af úr (mennta)setrinu
sjá ei höfuðborgina ...
Dr. Gylforce virti allar viðveruskyldur sínar að vettugi vikudag þennan & kvaddi mennta- & menningarsetrið við Kársnesið með virktum, buktaði sig & beygði & hélt þegar í stað á vit vagna. Nema hvað.
Tilefnið reyndist ærið hvar dr. Gylforce fagnar í dag fjórtán ára afmæli strætóbloggsins. Maður lifandi!!!
Dr.-inn hefir sönglað Halla & Ladda í allan dag enda á hann árin fjórtán sammerkt með systrunum úr Tungunum. En ekki hvað???Á þessum tímamótum bauð dr.-inn sjálfum sér upp á blágulan vagn úr Mjódd okkar Breiðhyltinga á leið út úr höfuðborginni, nánar tiltekið um Suðurlandið.
Dr. Gylforce sat sigri hrósandi í leið 51 & hugðist nú hafa upp á Tungunum; hvar er bærinn þeirra & hvað eru þær að sýsla þessi dægrin???
Doksi kallinn á aukinheldur ýmislegt sameiginlegt með þeim; klofinn upp að herðablöðum, kafloðinn & kiðfættur, vagngjarn & veðurbarinn - & ætíð vagnverji í spreng.
Hvað um það. Öngvar voru systurnar í ferð þessari en hún þó alger unaður frá A til Ö.
Yfir&út!
Tvær úr Tungunum
Umhverfismál | 25.11.2019 | 17:48 (breytt 27.11.2019 kl. 16:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjarðarmenn með falleinkunn
fáránlegt þetta var.
Gremja & grátleg seinkun
- gerðu í buxurnar.
Dr. Gylforce hapði pata af því að fjórir nýir Iveco vagnar væru komnir í gagnið hjá verktakanum suður í Firði. Nema hvað.
Verktakinn sá sér um akstur á innanbæjarleiðum í Hafnarfirði, 22, 33, 43 & 44 aukinheldur að hafa leiðir 11, 13, 23 & 31 á sínum snærum. Hvað um það.
Dr. Gylforce lagði leið sína í Fjörðinn & hlakkaði til að klófesta einn af þessum fjóru vögnum sem hafa fengið vinnunúmerin 224-227.
Dr.-inn ætlaði í leið 44 kl. 13:52 & beið eptir honum í Firðinum. Klukkan datt í 13:52 & allir aðrir vagnar lögðu af stað en ekkert bólaði á leið 44 - eða hvað??? Í stæði leiðar 44 stóð vagn merktur leið 43??? Humm, humm????
Leiðir 43 & 44 víxla í Firðinum en þá verða vagnstjórar að vera á tánum & breyta númerinu áður en vagninn kemur inn í Fjörðinn. Klukkan var orðin 13.55 þegar 226 Iveco vagninn kom. Doksi varð ánægður enda tilgangnum náð; spekúlera í spánnýjum vagni.
En hvað? Nei, nei, vagnstjórinn sagði "skipta bíl" þegar dr. Gylforce ætlaði inn í vagninn. Allt í lagi - en hvar í andsk. er þá hinn vagninn??? Vagninn átti að fara af stað fyrir þremur mínútum!!!
Loksins kom varavagninn, vagn 213, & lagði þá leiðin af stað klukkan 13:57 eða fimm mínútum á eptir áætlun. Það er slök frammistaða, einkum ef tekið er tillit til þess að dr.-inn ætlaði að ná í leið 1 annars staðar í Firðinum & nú var það nánast úr sögunni.Enn leiðinlegra við þetta var að dr.-inn reyndi að sýna vagnstjóranum að vagninn ætti löngu að vera farinn. Honum virtist alveg sama, var reyndar að erlendu bergi brotinn en það ætti nú ekki að skipta máli.
Fuss & svei! Fjarðarmenn fá því falleinkunn á þessum annars svala & fallega hvíldardegi.
Yfir&út!
Umhverfismál | 24.11.2019 | 16:10 (breytt kl. 17:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 123838
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar